Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
HHH hafa frá upphafi verið staðsettir í félagsmiðstöðinni Hrauninu í Víðistaðaskóla. Hittingurinn er hugsaður fyrir ungmenni í 5.-10. bekk sem skilgreina sig hinsegin, á einhvern hátt, eru í hinsegin pælingum og/eða áhugasöm um hinsegin málefni.
HHH hafa frá upphafi verið staðsettir í félagsmiðstöðinni Hrauninu í Víðistaðaskóla. Hittingurinn er hugsaður fyrir ungmenni í 5.-10. bekk sem skilgreina sig hinsegin, á einhvern hátt, eru í hinsegin pælingum og/eða áhugasöm um hinsegin málefni. Fyrirmyndin er Hinsegin félagsmiðstöðin í Reykjavík þar sem hittingar og hópastarf hafa gengið vonum framar.
„Við erum fjögur, þaulreynt starfsfólk félagsmiðstöðva, sem störfum í HHH. Þegar ungmennin koma með hugmyndir til okkar þá gerum við okkar allra besta að koma þeim í framkvæmd í samstarfi við ungmennin. Ungmennin sem störfuðu i jafningafræðslunni í sumar fengu t.d. þá hugdettu að Hafnarfjörður myndi á nýjan leik taka þátt Gleðigöngu Hinsegin daga núna í ágúst og við í HHH hjálpuðum þeim við að koma því í framkvæmd. Gangan gekk frábærlega vel og gaman að sjá hversu margir Hafnfirðingar gengu með okkur,“ segir Sigmar Ingi Sigurgeirsson en með Sigmari starfa þau Melkorka Assa Arnarsdóttir, Ragnhildur Ioana Guðmundsdóttir og Dagný Káradóttir í HHH.
HHH er opinn alla fimmtudaga frá kl. 19:30-22 fyrir nemendur í 8.-10. bekk og annan hvern fimmtudag frá kl. 17-19 fyrir nemendur í 5.-7. bekk. Markmið starfsins er að ungmennin upplifi sig örugg, velkomin og fái tækifæri til að blómstra í sínu. Starfið byggir að stórum hluta á jafningjafræðslu og fá ungmennin meðal annars það verkefni að vekja athygli á málefnum hinsegin ungmenna og fanga fjölbreytileikanum í Hafnarfirði.
„Við hvetjum alla Hafnfirðinga sem áhugasamir eru um HHH til að kynna sér starfið, hvetja þau áfram sem vilja kynna starfið og mæta á hittingana okkar. Við tökum vel á móti öllum.“
HHH er á Instagram og Facebook
Viðtal í Fjarðarfréttum: Hinsegin hittingur í Hafnarfirði – Fjarðarfréttir (fjardarfrettir.is)
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…