Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær mun halda áfram að ryðja veginn í átt að fullu jafnrétti – lagalegu og samfélagslegu og mun, líkt og aðrir landsmenn, fagna fjölbreytileikanum laugardaginn 17. ágúst. Jafningjafræðsla Vinnuskóla Hafnarfjarðar hefur málað Linnetstíginn í miðbæ Hafnarfjarðar í öllum regnbogans litum sem lið í því að fagna fjölbreytileikanum og mun á meðan á Hinsegin dögunum stendur standa fyrir viðburði í Hamrinum – ungmennahúsi Hafnarfjarðar.
Hafnarfjarðarbær mun halda áfram að ryðja veginn í átt að fullu jafnrétti – lagalegu og samfélagslegu og mun, líkt og aðrir landsmenn, fagna fjölbreytileikanum næstu daga og munu fagnaðarhöldin ná hámarki sínu í gleðigöngunni laugardaginn 17. ágúst. Í ár verður sú breyting á að sveitarfélagið verður ekki með eigin bíl í gleðigöngunni en starfsmenn og bæjarfulltrúar munu þess í stað taka þátt í göngunni á eigin forsendum með fjölskyldu og vinum. Jafningjafræðsla Vinnuskóla Hafnarfjarðar hefur málað Linnetstíginn í miðbæ Hafnarfjarðar í öllum regnbogans litum sem lið í því að fagna fjölbreytileikanum og mun á meðan á Hinsegin dögunum stendur standa fyrir viðburði í Hamrinum – ungmennahúsi Hafnarfjarðar: Ung og hinsegin / Young and queer . Hinseginkvöldi sem haldið er af ungu fólki fyrir ungt fólk.
Hafnarfjarðarbær og Samtökin ´78 undirrituðu í desember 2015 samstarfssamning um fræðslusamstarf sem hófst á árinu 2016. Samningurinn hefur síðan þá verið endurnýjaður árlega og hafa þær kannanir og rannsóknir sem gerðar hafa verið bæði meðal nemenda og starfsmanna sýnt að fræðslan fellur í góðan jarðveg. Hinsegin fræðsla, á vegum starfsfólks Samtakanna ´78, er orðinn fastur liður í hafnfirsku skólasamfélagi.
Lagt var upp með að samstarf við Samtökin ´78 hefði þríþættan tilgang: (1) að fræða ungmenni um fjölbreytileika mannlífsins til að draga úr fordómum, (2) að styðja við ungt fólk sem er á kynþroskaaldri með fjölbreyttri fræðslu og (3) að færa hafnfirskum ungmennum og fjölskyldum þeirra aðgang að ráðgjöf um persónuleg málefni hjá Samtökunum 78 án kostnaðar. Til að uppfylla þennan þríþætta tilgang var farið af stað með þrjú verkefni:
Meginmarkmið samnings frá upphafi hefur verið að auka þjónustu við nemendur og starfsfólk grunnskóla með fræðslu um málefni hinsegin fólks á grunni jafnréttis og sjálfsagðra mannréttinda. Erfitt er að meta raunverulegan og mælanlegan árangur af samstarfinu en ætla má að hafnfirsk ungmenni verði með tímanum víðsýnni og færari í að taka ákvarðanir og bera ábyrgð á sjálfum sér. Starfsfólk í skólum verði hæfara til að taka þátt í umræðunni og dæmin sýna að þegar upp koma álitamál þá er leitað til samtakanna um ráðgjöf og leiðir til að finna lausnir. Þannig hefur samstarfið leitt til aukinnar þekkingar og vitundarvakningar meðal starfsfólks og nemenda grunnskóla um málefni er varða kynhneigð, kynvitund og kyneinkenni fólks.
Hafnarfjörður hefur verið með fjallkonu í upphafi hátíðarhaldanna 17. júní ár hvert þar sem hún flytur ávarp. Val á fjallkonu í Hafnarfirði hefur einkennst að tíðarandanum hverju sinni. Á ári aldraðra var fulltrúi eldri borgara fjallkona, fulltrúi innflytjenda hefur verið fjallkona, íþróttakonur sem hafa skarað framúr verða oft fyrir valinu og árið 2017 var transkona fjallkona Hafnfirðinga. Með þessu telur sveitarfélagið sig vera þátttakandi hverju sinni í þeim málum sem efstu eru á baugi. Fjallkonan er einskonar tákn íslenska lýðveldisins og því er vel við hæfi að fylgja ekki eingöngu staðalímyndum heldur vísa einnig í kærleik, réttindabaráttu og umburðarlyndi.
Njótum öll Hinsegin daga og málum bæ og borg í öllum regnbogans litum!
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…