Hjartasvellið á Ráðhústorgi opnar 10. nóvember

Tilkynningar

Í nóvember og desember mun Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Bæjarbíó starfrækja Hjartasvellið, 200 fermetra skautasvell fyrir ungt fólk á öllum aldri. Hjartasvellið mun, líkt og í fyrra, vera staðsett fyrir framan Bæjarbíó og Bókasafn Hafnarfjarðar, á sjálfu Ráðhústorginu. Uppsetning á Hjartasvellinu hefst í vikunni.

100% vistvænt og 100% skemmtilegt

Í nóvember og desember mun Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Bæjarbíó starfrækja Hjartasvellið, 200 fermetra skautasvell fyrir ungt fólk á öllum aldri. Svellið var opnað á aðventunni 2021 og hafa þúsundir gesta síðan þá notið samveru á skautum í hjarta Hafnarfjarðar. Hjartasvellið mun, líkt og í fyrra, vera staðsett fyrir framan Bæjarbíó og Bókasafn Hafnarfjarðar, á sjálfu Ráðhústorginu. Þessi staðsetning tengir skemmtilega saman Jólaþorpið í miðbænum og ljósadýrðina í Hellisgerði. Svo er tilvalið að skella sér á Bókasafn Hafnarfjarðar eftir skautaferðina, ylja sér og glugga í bók. Hjartasvellið opnar kl. 16 föstudaginn 10. nóvember og er síðasti opnunardagurinn Þorláksmessa.

Hjartasvellið verður opið frá 10. nóvember til og með 23. desember 2023

Hjartasvellið er 100% vistvænt þar sem hvorki vatn né rafmagn er notað til að frysta það. Svellið er byggt á sérhönnuðum gerviísplötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís sem býður uppá frábæra afþreyingu, upplifun og hreyfingu fyrir alla fjölskylduna. Skautaferðirnar eru þegar komnar í sölu á tix.is og innifalin er leiga á skautum og hjálmi. Opið verður föstudaga – sunnudaga í nóvember en í desember bætast fimmtudagarnir við.

Opið alla fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga

  • Fimmtudaga 16:00-21:00
  • Föstudaga 16:00-21:00
  • Laugardaga 12:00-21:00
  • Sunnudaga 12:00-19:00

Uppsetning á Hjartasvellinu hefst í vikunni. Almenn bílastæði á Ráðhústorgi fyrir framan Bókasafn Hafnarfjarðar og Bæjarbíó verða lokuð á meðan á Hjartasvellið er opið. Stæði fyrir fatlað fólk við bókasafnið verða opin.

Langar þig að vinna á Hjartasvellinu eða þekkir þú einhvern áhugasaman?

Leit stendur yfir að ungu fólki á aldrinum 18-25 ára til að vinna við Hjartasvellið á aðventunni. Unnið er á tvískiptum 4 – 5 klukkustunda vöktum. Ef þú ert með góða þjónustulund og hefur gaman af því að vera í skapandi og skemmtilegu umhverfi þá er þetta starf fyrir þig. Bæjarbíó er áhugaverður og viðburðarríkur vinnustaður. Umsóknir eiga að berast á netfangið: starf@bbio.is með upplýsingum um nafn, aldur og fyrri störf.

Ábendingagátt