Hjartasvellið opnar um helgina!
Frá og með laugardeginum 11. desember og fram í janúar mun Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Bæjarbíó hafa opið 200 fermetra skautasvell á bílastæðinu beint fyrir aftan Bæjarbíó. Svellið, sem fengið hefur nafnið Hjartasvellið, er frábær viðbót við jólabæinn Hafnarfjörð og mun svellið tengja enn betur saman Jólaþorpið í miðbænum, veitingahús og verslanir í hjarta Hafnarfjarðar og ljósadýrðina í Hellisgerði. Hjartasvellið er frábær afþreying, upplifun og hreyfing fyrir alla fjölskylduna .
Komdu og dragðu djúpt andann á skautum í hjarta Hafnarfjarðar!
Frá og með laugardeginum 11. desember og fram í janúar mun Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Bæjarbíó hafa opið 200 fermetra skautasvell á bílastæðinu beint fyrir aftan Bæjarbíó. Svellið, sem fengið hefur nafnið Hjartasvellið, er frábær viðbót við jólabæinn Hafnarfjörð og mun svellið tengja enn betur saman Jólaþorpið í miðbænum, veitingahús og verslanir í hjarta Hafnarfjarðar og ljósadýrðina í Hellisgerði. Hjartasvellið er frábær afþreying, upplifun og hreyfing fyrir alla fjölskylduna. Danshópurinn Dass tók fyrsta rennslið á svellinu í dag.
Hjartasvellið er 100% umhverfisvænt þar sem hvorki vatn né rafmagn er notað til að frysta svellið auk þess sem framleiðslan er umhverfisvæn. Að baki framleiðslunni liggja miklar rannsóknir og þróun á framleiðsluferli sem lágmarkar bæði orkuneyslu og losun CO2. Svellið er byggt á sérhönnuðum ísplötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís.
Salan er hafin á tix.is – Hjartasvellið

Rekstrarsamningur við milli Hafnarfjarðarbæjar og Bæjarbíó var undirritaður á Hjartasvellinu við uppsetningu svellsins í gær. Bæjarráð samþykkti rekstrarsamning um skautasvell í miðbæ Hafnarfjarðar á fundi sínum 2. desember sl.
Mikilvægar upplýsingar fyrir alla áhugasama
- Svellið er opið frá kl. 13 -20 alla daga (utan stórhátíðardaga)
- Frítt er á svellið frá kl. 13-15 alla virka daga – aðgangsstýring og engin bókun
- Hver skautaferð er 50 mín og hefst á heila tímanum
- Skautaferð er bókuð á tix.is – Hjartasvellið – einnig er hægt að panta skauta fyrir þá sem ekki eiga skauta
- Þeir sem ekki eiga skauta geta leigt skauta á svæðinu eða um leið og skautaferðin er bókuð á tix.is – Hjartasvellið
- Þeir sem koma með eigin skauta þurfa að láta skerpa þá á svæðinu
- Minnum fólk á að koma tímanlega til að forðast raðir
- Boðið verður upp á heitt kakó og rjóma, safa og léttar veitingar við svellið
- Aðeins 40 manns komast á svellið á hverjum klukkutíma