Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll áhugasöm til að vera með og skrá sig til leiks í þessu hvetjandi og góða heilsueflandi framtaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst í dag. Keppnin fer fram dagana 8. – 28. maí. Opnað var fyrir skráningu 17. apríl síðastliðinn og stendur skráning enn yfir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll áhugasöm til að vera með og skrá sig til leiks í þessu hvetjandi og góða heilsueflandi framtaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi og frábær tími til að huga að heilsunni og daglegri hreyfingu. Átakið er góð leið fyrir vinnustaði landsins til að huga að starfsandanum og til þess að hressa upp á stemninguna. Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru kjörin leið til útivistar, frábær hreyfing og þar með góð líkamsrækt. Munum bara eftir skynseminni í umferðinni, hjálminum og bjöllunni góðu. Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.
Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inn á vef Hjólað í vinnuna og er að finna leiðbeiningar á ensku í skjali neðst á síðunni. Ef upp koma vandamál við skráningu er hægt að hafa samband beint við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í síma 514-4000 eða senda tölvupóst á netfangið hjoladivinnuna@isi.is. Á heimasíðu verkefnisins er yfirlit yfir allar helstu reglur Hjólað í vinnuna. Allir þátttakendur eru hvattir til að deila efni og reynslu sinni úr Hjólað í vinnuna:
Senda inn myndir – Senda inn myndir | Hjólað í vinnuna (hjoladivinnuna.is)
Senda inn myndband – Senda inn myndband | Hjólað í vinnuna (hjoladivinnuna.is)
Senda inn frásögn – Skrá reynslusögu | Hjólað í vinnuna (hjoladivinnuna.is)
Brynja Valdís Waage, nemandi á myndlistarbraut við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, heldur myndlistarsýningu í Hellisgerði 10. ágúst næst komandi, á vegum…
Leikskólinn Hlíðarendi fékk Grænfánann afhentan í sjöunda sinn. Síðastliðin tvö ár hefur skólinn unnið með þemað “náttúruvernd”, þar sem börnin…
Stundin var hátíðleg en að sama skapi var stemningin létt þegar Magnús Kjartansson tónlistarmaður fékk sinn hjartastein við Bæjarbíó. Steinninn…
Opni leikvöllurinn á milli Einihlíðar og Bjarmahlíðar í Mosahlíðinni í Setberginu hefur tekið stakkaskiptum. Leikvöllurinn er meðal þeirra sem fá…
Listamaðurinn og tölvuleikjahönnuðurinn Sölvi Snær Einarsson starfar á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði, við gerð tölvuleiks sem ber heitið Ferðalag…
Risatjald með snjóstormi, Páll Óskar, VÆB og lótustjald með tónheilun bíður gesta barnahátíðarinnar Kátt sem haldin verður á Víðistaðatúni 27.…
Glænýr víkingur, ísskápur og blár ópalpakki prýða nú Hafnarfjarðarbæ. Spænski listamaðurinn Juan vinnur nú að því að breyta rafmagnskössum og…
Frestur er til miðnættis 1. september. Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja…
Ásmegin sjúkraþjálfun, í eigu Kristins Magnússonar sjúkraþjálfara, gefur verkefninu Brúkum bekki, undir stjórn Gylfa Ingvarssonar og Kristins, fimm nýja bekki…
Rán Sigurjónsdóttir, 20 ára grallari og nemi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, heldur fræðandi listasýningu um Sædýrasafnið í Hafnarborg…