Hlíðarendabörnin sýndu bæjarstjóra útskriftarverk sitt

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Útskriftarhópur barnanna á leikskólanum Hlíðarenda tók í morgun á móti bæjarstjóra og sýndi lokaverkefnið sitt, sérsniðinn bæ sem þakti allt gólf kennslustofunnar. Bærinn heitir Hafnarfjörður.

Rík hefð á Hlíðarenda

Útskriftarhópur barnanna á leikskólanum Hlíðarenda tók í morgun á móti bæjarstjóra og sýndi lokaverkefnið sitt, sérsniðinn bæ sem þakti allt gólf kennslustofunnar.

Til fjölda ára hefur elsti hópur leikskólans heimsótt bæjarstjóra í Ráðhús Hafnarfjarðar í spjall. Það gerðist einmitt í síðustu viku. Þá buðu börnin bæjarstjóra á útskriftarsýninguna sína. Það er líka árleg heimsókn en í fyrsta sinn sem þessi hópur upplifir það sem og í fyrsta sinn sem bæjarstjórinn Valdimar fer á svæðið – enda tók hann fyrst við stjórnartaumunum í upphafi árs.

Í bæ barnanna má finna sundlaug, flugvöll, tveggja hæða strætó og ýmis þekkt kennileiti hér í Hafnarfirði. Má þar nefna vitann okkar góða.

Mikil spenna var í hópnum og kepptust þau við að sýna bæjarstjóra einmitt sinn hluta af uppbyggingunni í ár.

Árleg en einstök útskriftarsýning

Sýning sem þessi hefur nú verið sett upp í skólanum til rúmlega 20 ára. Þessi útskriftarsýning er því löngu orðin hefð.

Börnin koma öll með tillögur að nafni á bæinn sinn. Í ár varð nafnið Hafnarfjörður hlutskarpast. Tillögurnar voru yfir 10; flugvélabær, krakkabær hoppibær. Þau rétta svo upp hönd sem studdu hverja tillögu. Loks var kosið leynilega um þær þrjár efstu. Þá skrifuðu þau 1, 2 eða 3 á miða og hlaut nafnið Hafnarfjörður 8 af 17 atkvæðum.

Þessar gagnkvæmu heimsóknir eru alltaf jafn skemmtilegar og börnin mjög áhugasöm um verkefni og störf bæjarstjóra.

Áfram Hlíðarendi! Vegni ykkur öllum vel í nýjum skóla.

 

 

Ábendingagátt