Hoppað á nýjum ærslabelg í Ljónagryfjunni
Nýir ærslabelgir hafa bæst við hóp belgjanna hér í Hafnarfirði. Einn er í Ljónagryfjunni á Eyrarholti. Hinn á Hörðuvöllum. Já, nú verður hoppað. Það gerðu börnin í Vesturkoti einmitt í morgun.
Ærslabelgir ýta undir gleði og leik
Kæra unga fólk og öll sem elskið að hoppa. Nýir ærslabelgir hafa bæst við hóp belgjanna fimm sem fyrir voru hér í Hafnarfirði. Einn er í Ljónagryfjunni á Eyrarholti. Hinn við Hörðuvelli. Börnin úr Vesturkoti gerðu sér ferð í morgun og hoppuðu á glænýjum belgnum. Gleðin leyndi sér ekki. Belgurinn er í fullkominni fjarlægð frá skólanum til að æfa litlar fætur. Staðsetningin þar er líka afbragð, ofan í sjálfri Ljónagryfjunni. Hinn er á Hörðuvöllum. Einnig afar falleg staðsetning.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tók ákvörðun um belgina tvo. Það var gert til að svara kalli íbúa um ærslabelgi víðar bænum og það innan sem flestra hverfa. Fimm ærslabelgir voru fyrir í Hafnarfirði í og því eru ærsabelgirnir orðnir sjö nú þegar þessir tveir eru komnir í gagnið. Ærslabelgirnir eru opnir frá kl. 9 -22 alla daga vikurnar yfir sumartímann.
Já, nú er hægt að hoppa enn víðar í Hafnarfirði
Hvar eru ærslabelgir?
- Ærslabelgur á Víðistaðatúni var fyrsti belgurinn í Hafnarfirði tekinn í notkun 2019.
- Ærslabelgur á Óla Run túni var tekinn í notkun sumarið 2020
- Belgur í Setbergi í upphafi sumars 2021.
- Ærslabelgur á Völlunum var opnaður haustið 2021.
- Sá fimmti kom sumarið 2023 í Áslandi
- Nú einnig í Ljónagryfjunni á Holtinu
- Á Hörðuvöllum
Yfirlit yfir staðsetningu gömlu ærslabelgjanna

Hoppað á Hörðuvöllum – staðsetning á nýjum ærslabelg.

Hoppað á Holtinu – staðsetning á nýjum ærslabelg.