Horfnu ævintýrapersónurnar í Áslandsskóla
Söngleikurinn Horfnu ævintýrapersónurnar í uppsetningu 3. bekkjar Áslandsskóla fékk frábærar viðtökur á uppskeruhátíð Menningardaga Áslandsskóla fyrir páska. Þessi árlega menningarhátíð stendur svo sannarlega undir nafni. Uppskeran var ríkuleg.
Ríkuleg uppskera á árlegri menningarhátíð
Líf, leikur og söngur einkenndi árlega menningarhátíð Áslandsskóla. Nemendur í 2. bekk sungu lag. Nemandi í 6. bekk spilaði á gítar og annar á píanó. Nemendur 7. bekkjar sýndu dans. Hljómsveitin Hrafnaspark kom fram og litaði daginn. Nemendur 10. bekkjar settu upp rómað kaffihús sitt, Klemma bita, í fjáröflunarskini. Hátíðin var haldin fyrir páska og já – hún var stórkostleg.
Áhorfendur klöppuðu og héldu símum á lofti til að fanga frábærri uppsetningu nemendanna. Þétt skemmtidagskrá var í boði.
Skólinn skreyttur listaverkum
Skólinn var sem eitt listaverk og þema menningardaga í Árlandsskóla í ár DÝRAGARÐUR. Nemendur nýttu vikuna í kringum menningarhátíðina til undirbúnings. Hvert sem litið var mátti sjá handverk nemenda, þar sem íþróttir spiluðu aðalhlutverkið.
Menningardagar í Áslandsskóla hafa verið árlegur viðburður frá upphafi fyrir utan breytt snið í heimsfaraldrinum. Hefðin er afar skemmtileg og mikil tilhlökkun hjá bæði nemendum og starfsfólki við allan undirbúning og vinnu. Undirbúningurinn tekur dagana þrjá á undan uppskerunni. Menningardagar hafa sett skemmtilegan svip á allt samfélagið í Áslandi. Mikill fjöldi gesta kemur og fagnar með nemendum og starfsfólki. Bæjarstjóri og sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs voru á meðal gesta.
Já, gleði og stolt einkenndu daginn og uppskeran ríkuleg.