Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Eldgos, jarðhræringar og mikil umbrot eru að eiga sér stað í nánasta umhverfi Hafnarfjarðar. Rétt er að geta þess að ef svo ólíklega vildi til að rýma þyrfti húsnæði eða svæði innan höfuðborgarsvæðisins vegna almannavarnaástands þá er til rýmingaráætlun fyrir allt svæðið sem hægt er að virkja. Rósa bæjarstjóri Hafnarfjarðar var með grein í Morgunblaðinu í vikunni um þá vinnu sem er að eiga sér stað við jarðskjálfta- og eldgosahættumat fyrir höfuðborgarsvæðið. Hættumat er grunnur frekari aðgerða.
Eldgos, jarðhræringar og mikil umbrot eru að eiga sér stað í nánasta umhverfi Hafnarfjarðar. Hugur bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og íbúa er hjá vinum okkar í Grindavík og á Reykjanesinu öllu. Náttúruhamfarirnar í bakgarðinum geta einnig ýtt undir óöryggi og jafnvel vanlíðan hjá íbúum í Hafnarfirði og víðar á höfuðborgarsvæðinu sem horfa nokkuð vanmáttug á meðan náttúran tekur völdin. Rétt er að geta þess að ef svo ólíklega vildi til að rýma þyrfti húsnæði eða svæði innan höfuðborgarsvæðisins vegna almannavarnaástands þá er til rýmingaráætlun fyrir allt svæðið sem hægt er að virkja.
Rýmingaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið
Rósa bæjarstjóri Hafnarfjarðar var með grein í Morgunblaðinu í gær fimmtudaginn 8. febrúar þar sem hún fer yfir þá vinnu sem á sér stað við jarðskjálfta- og eldgosahættumat fyrir höfuðborgarsvæðið. Hættumat er grunnur frekari aðgerða og ef marka má viðbrögð við greininni standa vonir til að þessari vinnu verði flýtt.
Daglega birta fjölmiðlar álit ýmissa sérfræðinga, lærðra sem ólærðra, á mögulegum sviðsmyndum jarðskjálfta- og eldvirkni og hraunrennslis á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu. Koma þarf fram ýmsar persónulegar skoðanir um mótvægisaðgerðir og hvernig byggð skuli þróast á komandi árum. Gott og vel – en óneitanlega ýta sum ummælin undir ótta fólks og óvissu um framtíðina. Í skipulagsgerð undanfarinna áratuga hefur hins vegar minna farið fyrir athugasemdum, kröfum eða ábendingum opinberra stofnanna eða annarra í þessa veru en öðru máli gegnir um t.d. vatnsverndarsjónarmið og fornminjavernd sem oft setja strik í byggingaráform. Þá má ekki gleyma að jafnvel hraunavinir hafa geta tafið skipulagsferli og uppbyggingu misserum og árum saman án þess að eldvirkni eða hraunrennsli hafi komið til tals. Í einhverjum tilvikum hafa þó byggingar verið færðar til, m.a. við gerð Árbæjarlaugar í Reykjavík þegar í ljós kom sprunga á fyrirhuguðum byggingarreit og víðar hefur verið tekið tillit sprungna við skipulagsgerð nýrra hverfa.
Veðurstofa Íslands vinnur nú að jarðskjálftahættumati fyrir höfuðborgarsvæðið í samstarfi við almannavarnir og fulltrúa sveitarfélaganna. Áætlað er að það verði tilbúið í vor. Sömu aðilar vinna að gerð eldgosahættumats fyrir höfuðborgarsvæðið en gert er ráð fyrir að því ljúki í lok næsta árs. Nú þegar eldgosaváin er komin fram með eldsumbrotunum á Reykjanesi er mikilvægt að þessu hættumati verði flýtt. Þótt flestir sérfræðingar sem hafa tjáð sig um þessi mál undanfarnar vikur séu sammála um að eldgos komi ekki upp innan byggðar á höfuðborgarsvæðinu þá geti tilteknum hlutum svæðisins stafað hætta af mögulegu hraunflæði. Mikilvægt er fyrir sveitarfélögin á svæðinu að fá heildarmyndina sem fyrst með þeim sviðsmyndum sem komið geta upp út frá sameiginlegu mati og niðurstöðu opinberra aðila eins og sérfræðinga Veðurstofunnar og almannavarna. Þá fyrst er hægt að kortleggja stöðuna og hanna mótvægisaðgerðir sé ástæða til. Enginn veit þó hvort eða hvenær grípa þurfi til slíkra aðgerða en traustvekjandi er að áætlunin sé til. Þegar eldgosahættumatið hefur litið dagsins ljós er einsýnt að taka þurfi upp svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Þá þarf að rýna það með tilliti til niðurstaðna, mögulegra varnargarðagerðar í framtíðinni og fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Brynja Valdís Waage, nemandi á myndlistarbraut við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, heldur myndlistarsýningu í Hellisgerði 10. ágúst næst komandi, á vegum…
Leikskólinn Hlíðarendi fékk Grænfánann afhentan í sjöunda sinn. Síðastliðin tvö ár hefur skólinn unnið með þemað “náttúruvernd”, þar sem börnin…
Stundin var hátíðleg en að sama skapi var stemningin létt þegar Magnús Kjartansson tónlistarmaður fékk sinn hjartastein við Bæjarbíó. Steinninn…
Opni leikvöllurinn á milli Einihlíðar og Bjarmahlíðar í Mosahlíðinni í Setberginu hefur tekið stakkaskiptum. Leikvöllurinn er meðal þeirra sem fá…
Listamaðurinn og tölvuleikjahönnuðurinn Sölvi Snær Einarsson starfar á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði, við gerð tölvuleiks sem ber heitið Ferðalag…
Risatjald með snjóstormi, Páll Óskar, VÆB og lótustjald með tónheilun bíður gesta barnahátíðarinnar Kátt sem haldin verður á Víðistaðatúni 27.…
Glænýr víkingur, ísskápur og blár ópalpakki prýða nú Hafnarfjarðarbæ. Spænski listamaðurinn Juan vinnur nú að því að breyta rafmagnskössum og…
Frestur er til miðnættis 1. september. Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja…
Ásmegin sjúkraþjálfun, í eigu Kristins Magnússonar sjúkraþjálfara, gefur verkefninu Brúkum bekki, undir stjórn Gylfa Ingvarssonar og Kristins, fimm nýja bekki…
Rán Sigurjónsdóttir, 20 ára grallari og nemi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, heldur fræðandi listasýningu um Sædýrasafnið í Hafnarborg…