Hraun-vestur, reitur ÍB2

Fréttir

Skipulagslýsing

Hraun-vestur, reitur ÍB2. Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013– 2025.

Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 31.01 2020 var eftirfarandi bókun gerð: Lögð fram ný skipulagslýsing dags. 29.1.2020 vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breytingin nær til 10 ha. reits í Hraunum-vestur sem afmarkast af Flatahrauni, Hjallahrauni, Reykjavíkurvegi og athafnasvæði AT1 að vestanverðu. Land- notkun reitsins breytist úr íbúðasvæði ÍB2 í miðsvæði. Jafnframt verði skipulagslýsing sem samþykkt var í skipulags- og byggingar- ráði þann 30.04.2018 dregin til baka.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að draga afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs frá 30.4.2018 um samþykkt á lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi til baka. Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða skipulagslýsingu dags. 29.1.2020 og að málsmeðferð verði samkvæmt 1.mgr. 30.gr. skipulagslaga. Ofangreindum samþykktum er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar staðfesti afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 05. febrúar 2020.

Þegar vinna við tillögu að breytingu á aðalskipulagi hefst skal sveitarstjórn taka saman lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hafi við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, svo sem um kynningu og samráð gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum. 

Skriflegar ábendingar skulu berast þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði eða á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is eigi síðar en 24.03.2020. Ábendingar skulu merktar „Aðalskipulag – Hraun vestur“ og skal nafn sendanda, kennitala og heimilisfang koma fram.

Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar

Ábendingagátt