Hreinsunarátak daganna 7. til 18. apríl „Flottur Fjörður“

Fréttir

Plokkara velkomnir, grill, glaðningur og frítt í sund fyrir alla sem leggja lið. Götuþvottur í fullum gangi, Umhverfisvaktin að fara í gang og unnið með fyrirtækjum að hreinsun í nær umhverfi.

Vikuna eftir páska blæs Hafnarfjarðarbær til hreinsunarátaks í bænum þar sem íbúar eru hvattir til þátttöku í vorhreinsun sem skipulögð er við lóðir grunnskólanna og sundstaði í bænum.  Þá verður einnig unnið með fyrirtækjum í hreinsun í þeirra umhverfi og gámum komið fyrir á þremur stöðum í Hafnarfirði og eru gámar einkum hugsaðir fyrir losun á timbri og járni frá fyrirtækjum á hverju svæði fyrir sig. Hreinsunardagur starfsfólks verður 18. apríl en þá tekur starfsfólk bæjarins sig til við að þrífa í nágrenni ráðhússins og annarra opinberra bygginga. Götuþvottur er þegar hafinn og er á fullu í bænum og þá verður garðaúrgangur sóttur í byrjun maí

TÍNUM, PLOKKUM, GRILLUM, GLEÐJUMST OG SYNDUM.

„Flottur fjörður“ er heiti átaksins sem verður hrint af stokkunum laugardaginn 7. apríl við Lækjarskóla og Setbergsskóla. Tekið verður til á skólalóðunum og í hverfunum um kring en dagskrá átaksvikunnar er eftirfarandi:

  • Laugardaginn 7. apríl verður vorhreinsun við Lækjarskóla og Setbergsskóla frá 11:00 til 13:30. Tekið verður til á skólalóðunum, í miðbænum og Setberginu og endað við Suðurbæjarlaug
  • Þriðjudaginn 10. apríl verður vorhreinsun við Víðistaðaskóla starfsstöðina við Víðistaðatún og Engidal. Tekið verður til á skólalóðunum, í norður- og vesturbænum frá kl. 16:30-19:00 og endað við Sundhöllina.
  • Miðvikudaginn 11. apríl verður vorhreinsun við Áslandsskóla og Hraunvallaskóla. Tekið verður til á skólalóðunum, í Áslandinu og á Völlunum frá klukkan 16:30 til 19:00 og endað í Ásvallalaug.
  • Fimmtudaginn 12. apríl verður vorhreinsun við Hvaleyrarskóla og Öldutúnsskóla. Tekið verður til á skólalóðunum, á Holtinu og Suðurbænum frá kl. 16:30 til 19:00 og endað við Suðurbæjarlaug. 

Það nýjasta í hlaupum og útivist er svokallað „plokk“ sem er af sænskri fyrirmynd þar sem fólk safnast saman og labbar eða skokkar og týnir upp rusl í leiðinni. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir „plokkara“ að láta sjá sig og læra eða kenna „plokkið“. Ruslapokar, ruslatínur og gámar verða á staðnum en áhugasamir eru beðnir að klæða sig eftir aðstæðum og koma með hanska eða vettlinga en af umhverfisástæðum verður ekki boðið uppá einnota plasthanska. Öllum verður boðið í pylsuveislu eftir törnina og svo fá allir sem taka þátt frítt í sund og smá glaðning frá Hafnarfjarðarbæ. 

 

HREINSUNARDAGUR STARFSMANNA HAFNARFJARÐARBÆJAR

Starfsfólk Hafnarfjarðar lætur sitt ekki eftir liggja en hreinsunardagur þeirra verður 18. apríl. Þá hreinsa starfsmenn svæðin í kringum vinnusvæðin sín. Starfsmenn ráðhússins hafa sem dæmi í nokkur ár týnt rusl og sópað Thorsplanið og önnur svæði í nágrenni Ráðhússins.  

 

FLOTTAR FYRIRMYNDIR MEÐAL FYRIRTÆKJA Í HAFNARFIRÐI  

Eins og fram kom hér að ofan verður einnig unnið með fyrirtækjum í hreinsun í þeirra umhverfi og gámum komið fyrir á þremur stöðum í Hafnarfirði og eru gámar einkum hugsaðir fyrir losun á timbri og járni frá fyrirtækjum á hverju svæði fyrir sig. Gámar verða á svæðinu daganna 9. til 18. apríl.  Fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að nýta sér þessa þjónustu bæjarins og leggja bænum þannig lið í að gera ásýnd hans sem besta. Gámarnir verða staðsettir sem hér segir

GARÐAÚRGANGUR VERÐUR SÓTTUR Í BYRJUN MAÍ

Eins og venja er hirðir bærinn garðaúrgang bæjarbúa. Sú hreinsun er skipulögð eftir hverfum og fer fram seinni partinn í maí.  Íbúar eru beðnir um að setja garðaúrgang utan við lóðarmörk í pokum og bindið greinaafklippur í knippi. Athugið að hirðing á ekki við lausan jarðveg, timbur, málma og spilliefni.

GÖTUSÓPUN Í FULLUM GANGI

Þessa daganna er verið að vinna að götuþvotti af fullum krafti. Vinnan hefur staðið yfir alveg frá því í byrjun mars þar sem þvegnar hafa verið stofnbrautir. Hér að neðan er svo áætlun sem verið er að vinna eftir en um er að ræða allsherjar sópun á Hafnarfirði samkvæmt eftirfarandi plani. Sópun á aðalgönguleiðum 23. mars – 3. apríl. Sópun á öllum götum bæjarins  3. – 24. apríl. Sópun á öllum stéttum 3. apríl– 10. maí. Sópun á bílaplönum 3. apríl – 1. maí. Þvottur á eyjum 3. apríl – 15. maí. Miðbæjarsóp aðra hverja helgi. Því til viðbótar er lítill traktor að sópa hjóla og göngustíga þessa daganna en hann er með sóp framan á sér. 

Ábendingagátt