Hugmyndir um nútímalegt bókasafn í Firði

Fréttir

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tók fyrir á fundi sínum í dag hugmyndir um að flytja Bókasafn Hafnarfjarðar úr núverandi húsnæði að Strandgötu 1 í nýtt húsnæði að Strandgötu 26-30. Nýtt húsnæði á einni hæð byði upp á mikla möguleika.  

Horft til framtíðar með hugmyndum um
nútímalegt bókasafn

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tók fyrir á fundi sínum í dag hugmyndir
um að flytja Bókasafn Hafnarfjarðar úr núverandi húsnæði að Strandgötu 1 í nýtt
húsnæði að Strandgötu 26-30. Vilji er fyrir því að gera skuldbindandi
samkomulag milli 220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar sem byggir á hugmyndum ,,220
Fjarðar“ að reisa allt að 6.000 m2 nýbyggingu á lóð að Strandgötu
26-30 sem tengist eldra húsnæði Fjarðar að Fjarðargötu 13-15. Ef af verður er
gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á tímabilinu 2021-2023 og að afhending á
húsnæði til bæjarins til kaupa eða leigu verði á tímabilinu 2023-2026.

Sjá kynningarefni í fundargerð bæjarstjórnar 11.11.2020

Fjolmenningarsetur1Fjolmidlunarsetur2Mismunandi útfærslur að viðbyggingu við Fjörð verslunarmiðstöð eru í skoðun.

Breytt hlutverk
bókasafna – hönnun með þarfir notenda í huga

Það hefur legið fyrir um nokkurt skeið að endurskoða og
umbreyta húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar en núverandi húsnæði þykir hvorki skipulagt
né hannað með þarfir notenda í huga. Húsnæðið er á 4 hæðum og 7 pöllum
og of mikið af rými sem nýtist notendum safnsins takmarkað. Þannig þykir fjölnota salur
t.a.m. of lítill fyrir alla þá mögulegu starfsemi sem þar gæti farið fram. Árlega
koma á bókasafnið á milli 115.000 – 125.000 manns, gestir á öllum aldri.
Hafnfirðingar eiga stóra drauma um bæjarbókasafnið sitt samkvæmt könnun sem
framkvæmd var nú í sumar. Þar komu fram óskir um kaffihús, leiksvæði, þægilegar
setustofur og lengri afgreiðslutíma auk fjölbreyttari þjónustu. Nýtt húsnæði á
einni hæð byði upp á mikla möguleika til að þjóna gestum og gangandi á öllum
aldri mun betur og stærri og opnari fjölnota salur myndi nýtast vel fyrir bæði
viðskiptavini sem og starfsfólk bæjarins.

Fj1Fj2Fj3Fyrstu hugmyndir að nýju útliti Fjarðar verslunarmiðstöðvar.

Spennandi fyrirmyndir
bæði hér heima og erlendis

Á nýjum bókasöfnum sem byggð hafa verið á Norðurlöndum
þ.m.t. í Helsinki, Árósum og Osló er lögð mikil áhersla á að auk góðs úrvals af
lestrar- og afþreyingarefni fyrir viðskiptavini sé hægt að fá afnot af tækjum,
tólum og aðstöðu sem eru dýr í innkaupum eins og þrívíddarprentarar og
vínylskerar, saumavélar og upptökuaðstaða. Þessar hugmyndir um framtíðarhúsnæði fyrir nýtt og
nútímalegt bókasafn í Hafnarfirði verða teknar að nýju fyrir á fundi bæjarráðs
Hafnarfjarðar fimmtudaginn 19. nóvember. Hafnfirðingar og aðrir hagsmunaaðilar
eru hvattir til að kynna sér þær hugmyndir sem liggja fyrir nú þegar og drög að
samkomulagi við „220 Fjörð“.

Ábendingagátt