Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ásland 4 er nýjasta uppbyggingarsvæðið í Hafnarfirði og munu lóðir á þessu fallega svæði í suðurhlíðum Ásfjalls koma til úthlutunar á árinu 2022, þær fyrstu á vormánuðum. Í hverfinu munu rísa um 580 íbúðir og er reiknað með að fjöldi íbúa verði um 1.400.
Ásland 4 er nýjasta uppbyggingarsvæðið í Hafnarfirði og munu lóðir á þessu fallega svæði í suðurhlíðum Ásfjalls koma til úthlutunar á árinu 2022, þær fyrstu á vormánuðum. Auglýsing á deiliskipulagi nýs hverfis samhliða auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi Áslands 4 og 5 var staðfest á fundi bæjarstjórnar 9. febrúar síðastliðinn. Í hverfinu munu rísa um 550 íbúðir og er reiknað með að fjöldi íbúa verði um 1.400. Áhersla er lögð á að hverfið tengist innbyrðis með grænum svæðum eða trjábeltum. Í þessum beltum verða göngustígar og fjöldi af gróðursettum trjám sem mynda skjól og náttúrutengsl.
Skissa af hverfinu með fyrstu hugmyndum.
Ásland 4 er íbúðarhverfi í framhaldi af hverfum beggja vegna, þ.e. Ásland 3 og nýjum íbúðahverfum í Skarðshlíð og Hamranesi. Svæðið markast af Ásfjalli með Mógrafarhæð sem stingst inn í svæðið frá norðri, íbúðarbyggð Áslands 3 í norðaustri, Ásvallabraut í austri og suðri og nýrri íbúðarbyggð í Skarðshlíð og Hamranesi í vestri. Megináhersla í Áslandi 4 er lögð á lágreistar sérbýlisíbúðir, einbýli, par- og raðhús auk lítilla fjölbýlishúsa með sérinngöngum og óverulegri sameign. Alls um 550 íbúðir, þar af um 200 í einbýlishúsum, um 130 í rað- og parhúsum og um 220 í litlum fjölbýlishúsum. Þá er gert ráð fyrir 3-4 deilda leikskóla. Stutt er í útivistarsvæðin við Hvaleyrarvatn auk skógræktar og fjölbreyttrar náttúru víðsvegar í upplandi bæjarins. Eitt af aðalmarkmiðum skipulagsins er að nýta vel einstakt útsýni til suðurs í átt að Helgafelli og Lönguhlíðum.
Ásland 4 – deiliskipulagsuppdráttur.
Mikil eftirspurn er eftir íbúðarhúsalóðum í Hafnarfirði líkt og á höfuðborgarsvæðinu öllu. Þróunarreitir og fjölbýlishúslóðir í Hamranesi í Hafnarfirði fyrir alls um 1.600 íbúðir seldust hratt á árunum 2020-2021. Fyrsta skóflustungan í Hamranesi var tekin í febrúar 2021 og er uppbygging þar í fullum gangi. Síðustu sérbýlishúsalóðunum í Skarðshlíð, undir alls 285 íbúðir, var úthlutað í febrúar 2021. Í Skarðshlíðinni rísa einnig 26 fjölbýlishús með 231 íbúð. Frumbyggjar í Skarðshlíðarhverfi fluttu inn í hverfið sumarið 2020 og má gera ráð fyrir frumbyggjar í Hamranesi flytji inn á þessu ári. Þessi þrjú nýju hverfi í Hafnarfirði munu til framtíðar litið hýsa um 2.800 íbúðir og 6.500 íbúa.
Deiliskipulagsuppdrátt, greinargerð og skýringaruppdrátt fyrir Ásland 4 má finna í fundargerð bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 9. febrúar 2022 – sjá efni nr. 2 á dagskrá fundar
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…