Hvað er unglingamenning? Erasmus+ verkefni

Fréttir

Þessar pælingar urðu kveikjan að því að hópur unglinga úr Öldunni kom sér í samband við hóp unglinga frá Oulu í Finnlandi, bjuggu til verkefni, unnu að umsókn um styrkveitingu og fengu styrk frá Erasmus+ upp á €19.900

Getur ferð í ísbúð með vinum talist unglingamenning? Hvað er unglingamenning? Hvað er samfélagið að gera til að stuðla að heilbrigðu félagslífi unglinga? Hvað erum við að gera vel og hvað getum við gert betur?

Þessar spurningar urðu kveikjan að því að hópur unglinga úr Öldunni kom sér í samband við hóp unglinga frá Oulu í Finnlandi, bjuggu til verkefni, unnu að umsókn um styrkveitingu og fengu styrk frá Erasmus+ upp á €19.900.

Í mars mun hópurinn frá Finnlandi heimsækja unglingana okkar í Hafnarfirði og kynnast hafnfirskri unglingamenningu. Íslenski og finnski hópurinn dvelur saman í 10 daga, fer í ýmsa hópeflisleiki, ræða málin, heimsækja félagsmiðstöðvar og læra um menningu. Í júní hittast hóparnir  aftur í Finnlandi og skoða málin úr frá finnsku sjónarhorni. Eftir heimkomu vinna þátttakendur skýrslu og kynna niðurstöður verkefnisins fyrir þeim er málið varða.

Sandra úr Öldunni er hópnum innan handar og hefur leiðbeint þeim í undirbúningsvinnunni. Hún fór fyrir hönd hópsins á verkefnastjórafund og tók formlega við styrkinum frá Erasmus+ þann 9. janúar síðastliðinn! Til hamingju Aldan og flottu unglingar!

Ábendingagátt