Hvatningar- og foreldraverðlaunin til Víðistaðaskóla
Hvatningarverðlaun foreldraráðs 2019 fóru í skaut Víðistaðaskóla og Félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins, en verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Foreldraverðlaun foreldraráðs 2019 hlutu foreldrar 10. bekkjar Víðistaðaskóla.
Rökstuðningur sem fylgdi tilnefningu verðlaunanna
Hvatningarverðlaunin 2019
Jafnréttisdagar Víðistaðaskóla voru haldnir hátíðlegir 18.-20.mars. Þeir runnu undan rifjum jafnréttisráðs Hraunsins sem er uppbyggt af áhugasömum nemendum um jafnréttismál í skólanum. Í samstarfi við skólann voru þeir haldnir fyrir hádegi 18.mars, eftir hádegi 19. mars og lokahóf í hádeginu 20.mars. Jafnréttisdagar byggðust upp á hinum ýmsu fyrirlestrum frá Ástráði, Karlmennskunni, Druslugöngunni, Út með það og UN women. Afrakstur daganna var samvinna nemenda, félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins og Víðistaðaskóla sem unnu saman að vitundarvakningu um jafnréttismál í skólanum.
Foreldraverðlaunin 2019
Foreldraverðlaun foreldraráðs 2019 hlutu foreldrar 10. bekkjar Víðistaðaskóla. Á hverju ári setur 10. bekkur í Víðistaðaskóla upp söngleik en í ár var söngleikurinn Fútlúz settur upp með pompi og prakt 15.-17.febrúar 2019. Aðdragandinn að slíkum söngleik er langur og samstarf skóla og foreldra er mikið. Í ár tóku foreldrar mikinn þátt og stóðu við bakið á börnum sínum á einstakan hátt. Foreldrar kölluðu til aukins samstarfs við skóla og með reglulegum fundum, miðlun upplýsinga til annarra foreldra, skipulagði með nemendum umgjörðina í kringum söngleikjahelgina og pössuðu upp á leikara, söngvara, dansara og hljómsveitina á löngum æfingum með peppi, klapp á bakið, uppbyggjandi orðum ásamt alls kyns snatti og mat og drykk svo öllum liði vel á álagstíma. Þeir foreldrar sem stóðu fremstir í flokki voru: Kristjana Ósk Jónsdóttir, Oddný Ármannsdóttir og Brynhildur Hauksdóttir, Bergþóra Sigurðardóttir, Ragnheiður Anna Georgsdóttir og Lovísa Agnes Jónsdóttir.