Hvatningarverðlaun MsH – tilnefningar óskast

Fréttir

Sjötta árið í röð veitir Markaðsstofa Hafnarfjarðar hvatningarverðlaun til fyrirtækis sem hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum. Jafnframt eru veittar viðurkenningar til fyrirtækja, félaga eða einstaklinga sem hafa með starfsemi sinni eflt atvinnulíf og bæjaranda í bænum. Verðlaunin og viðurkenningarnar eru þakklætisvottur markaðsstofunnar fyrir óeigingjarnt starf við að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi.

Tilnefning fyrir 2021

Nú er komið að því að tilnefna fyrirtæki, félag eða einstaklinga til þessara verðlauna. Allir geta tilnefnt en nauðsynlegt er að láta röksemdarfærslu fylgja með. Stjórn markaðsstofunnar fer í kjölfarið yfir tilnefningarnar og velur verðlaunahafa úr þeim hópi.

Hægt er að senda inn tilnefningu til og með 31. janúar 2022. Senda inn tilnefningu
Listi yfir aðildarfyrirtæki markaðsstofunnar til að fá hugmyndir

Verðlaun- og verðlaunaafhending

Tilkynnt verður um verðlaunahafa við hátíðlega athöfn þann 17. febrúar næstkomandi. Þar verður jafnframt veglegt myndband um fyrirtækið sem hlýtur hvatningarverðlaunin frumsýnt.

Fyrrum verðlaunahafar

Á síðasta ári var það Listasmáskóli Heiðrúnar Helgadóttur sem fékk hvatningarverðlaunin en Ban Kúnn, Gulli Arnar, Gunnar Björn Guðmundsson og Kvennastyrkur fengu einnig viðurkenningu. 

Hægt er að skoða verðlaunahafa undanfarinna ára á vef markaðsstofunnar

Ábendingagátt