Hver á best skreytta húsið og best skreyttu götuna 2021?
Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til þess að setja upp stóru jólagleraugun í desember og senda ábendingu um það hús í Hafnarfirði sem þeim þykir bera af í jólaskreytingunum þetta árið.
Þú? Þið? Nágranninn? Vinafólkið? Foreldrarnir? Gömu skólafélagarnir?
Bæjarbúar hafa heldur betur tekið hvatningunni um að skreyta hús sín og lýsa upp skammdegið vel og nú styttist óðum til jóla. Á Þorláksmessu verða, líkt og síðustu ár í jólabænum Hafnarfirði, veitt verðlaun fyrir best skreyttu íbúðarhúsin og best skreyttu götuna í Hafnarfirði.
Setjum upp risastóru jólagleraugun og bendum á þá sem bera af í skreytingunum þetta árið
Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til þess að setja upp stóru jólagleraugun í desember og senda ábendingu um það hús í Hafnarfirði sem þeim þykir bera af í jólaskreytingunum þetta árið. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar mun sjá um val á best skreytta húsinu.

Sendu inn þína ábendingu
Komdu ábendingu þinni á framfæri með því að fylla út formið hér fyrir neðan fyrir 15. desember. Þar með er viðkomandi hús og viðkomandi gata komin í jólapott bæjarins um best skreytta húsið eða best skreyttu götuna.
Vafrinn þinn styður ekki við iframes og þvi ekki hægt að birta vefformið. Sendu okkur þína ábendingu á jolathorp@hafnarfjordur.is