Hverfisgata 12 laus til úthlutunar fyrir flutningshús
Hafnarfjarðarbær auglýsir til úthlutunar lóð fyrir flutningshús. Um er að ræða einbýlishúsalóð að Hverfisgötu 12 og verður lóðin seld á föstu verði. Umsóknarfrestur til og með föstudeginum 15. ágúst 2019.
Hafnarfjarðarbær auglýsir til úthlutunar lóð fyrir flutningshús. Um er að ræða einbýlishúsalóð að Hverfisgötu 12 og verður lóðin seld á föstu verði. Bæði einstaklingar og lögaðilar geta sótt um lóðina. Skila þarf inn með umsókn greinargerð um það hús sem flytja skal á lóðina og mun skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar meta umsóknirnar með tilliti til skipulagssjónarmiða.
Helstu upplýsingar um lóð – Hverfisgata 12
- Stærð lóðar er 228 fm2
- Hámarksbyggingarmagn á lóð er 150 fm2
- Húsið skal vera staðsett innan byggingarreits og er hámarksgrunnflötur 70 fm2
- Nýtingarhlutfall er 0,66
- Hámarksvegghæð frá gólfkóta við götu er 320 sm
- Þakhalli er 37°- 45°
- Lengd kvista má samanlagt ekki vera nema 50% af lengd langveggjar
- Húsið skal vera klætt að utan með bárujárni eða timbri
- Verð er lágmarksverð einbýlishúsalóða, nú 13.374.955.- kr. m/v byggingarvísitölu í júlí
- Húsið þarf að uppfylla skilyrði laga um friðun
- Húsið þarf að uppfylla skilmála deiliskipulags
- Húsið þarf að falla vel að umhverfinu og vera í svipaðri stærð og nærliggjandi hús.
- Húsið þurfi að víkja eða heimild sé til niðurrifs í gildandi deiliskipulagi þess svæðis sem viðkomandi hús er á
- Sögulegar forsendur þurfa að styðja flutning hússins á þessa lóð
- Gert er ráð fyrir staðgreiðslu lóðar 45 dögum eftir samþykkt bæjarstjórnar um úthlutun
Nánari skilmálar og upplýsingar vegna lóðar
- Hæðarblað
- Mæliblað
- Greinargerð og skipulagsskilmálar fyrir: MIÐBÆR HRAUN VESTUR
- Skipulagsuppdráttur fyrir: MIÐBÆR HRAUN VESTUR
- Mynd af lóð tekin 25.júlí 2019
- Almennar reglur um úthlutun lóða
- Almennir úthlutunarskilmálar
Umsókn og fylgiskjöl
Sótt er um lóð á MÍNAR SÍÐUR. Umsóknareyðublað er að finna undir: Umsóknir – Framkvæmd og skipulag – Lóðarumsókn íbúðahúsnæði. Umsóknum skal skilað í gegnum MÍNAR SÍÐUR í síðasta lagi fyrir lok dags föstudaginn 16. ágúst 2019. Umsóknir verða teknar til afgreiðslu á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 29. ágúst.
Fylgiskjöl með umsókn skulu innihalda:
- Greinargerð um það hús sem flytja skal á lóðina
- Myndir af húsi, innan og utan
- Upplýsingar um aldur
- Upplýsingar um stærð grunnflatar
- Upplýsingar um núverandi staðsetningu
- Teikningar auk byggingarsögu ef til eru