Íbúafundur 11. nóvember um aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040

Tilkynningar

Íbúafundur verður haldinn í íþróttamiðstöð Hauka þriðjudaginn næsta 11. nóvember kl. 17. Þar verður farið yfir endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025 – 2040.

Endurskoðun aðalskipulags 2025 – 2040

Íbúafundur verður haldinn í íþróttamiðstöð Hauka þriðjudaginn næsta 11. nóvember kl. 17. Þar verður farið yfir endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025 – 2040. Á þessu stigi kynningarferlisins er lögð fram tillaga að skipulagsáformum til framtíðar sem gefur nokkuð skýra mynd af því hvernig uppbyggingu í Hafnarfirði verður háttað næstu ár. Í kjölfarið verða haldnar vinnustofur þar sem hægt verður að kynna sér nánar mismunandi viðfangsefni.

Vinnustofurnar verða haldnar í Hafnarborg þar sem ráðgjafateymi mun kynna eftirfarandi skipulagsverkefni og leiða fundina:

  • 13. nóvember – miðbær og íbúðabyggð
  • 17. nóvember – upplandið og Krýsuvík

Vinnustofurnar byrja kl. 17 og má gera ráð fyrir að þær verði 1,5 klst. Gengið er inn frá Strandgötu. Vakin er athygli á því að tillaga á vinnslustigi er í kynningu til 24.11.2025 og má nálgast hana á skipulagsgatt.is.

Ábendingagátt