Innritun nemenda í grunnskóla haustið 2022

Fréttir

Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2022 og er fyrsta viðmið um umsóknarfrest 1. febrúar. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum og eru foreldrar hvattir til að kynna sér starfsemi skólanna. 

Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2022 og er fyrsta viðmið um umsóknarfrest 1. febrúar. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum og eru foreldrar hvattir til að kynna sér starfsemi skólanna. Hafnarfjörður er eitt skólaumdæmi skipt upp í skólahverfi og ræður lögheimili nemenda því í hvaða hverfisskóla þeir eiga vísa skólavist. Hægt að sækja um skóla í öðrum hverfum og getur umsókn fyrir 1. febrúar skipt þar máli hvort möguleiki sé að fara í skóla utan eigin skólahverfis.

Innritun barna í grunnskóla er á ábyrgð foreldra/forráðamanna

Innritun fer fram rafrænt í gegnum MÍNAR SÍÐUR undir: Umsóknir – Grunnskólar – Skólavist í grunnskóla. Athugið að einungis er hægt að sækja um grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar á vef bæjarins. Umsóknir um aðra grunnskóla í sveitarfélaginu þurfa að berast beint til viðkomandi skóla og ef/þegar sú skólavist er samþykkt þarf að sækja um staðfestingu þeirrar skólavistar á MÍNUM SÍÐUM á hafnarfjordur.is

Ítarlegri upplýsingar sendar frá skóla þegar nær dregur

Þegar nær dregur vori mun sá skóli þar sem barn fær skólavist senda foreldrum/forráðamönnum allar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið, m.a. um skráningar á frístundaheimili og í mataráskrift, leikjanámskeið fyrir 6 ára í ágúst áður en grunnskólinn hefst og annað það sem mikilvægt er að vita.

Ábendingagátt