Íþrótta- og viðurkenningarhátíð. Íþróttafólk ársins 2020

Fréttir

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd standa fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks ásamt vali á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar á árinu 2020 í beinu streymi kl. 18.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd standa fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks sem keppa með hafnfirskum liðum, Íslandsmeistara, hópa bikarmeistara, Norðurlandameistara, heimsmeistara og sérstakra afreka, ásamt vali á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar á árinu 2020. Hátt í 400 einstaklingar unnu Íslands- og eða bikarmeistaratitla með hafnfirsku liði á árinu 2020 og er þeim sérstaklega óskað til hamingju með árangurinn. Úthlutað verður úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að og ætlaður er til eflingar á íþróttastarfi fyrir yngri en 18 ára.

Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðar 2020 from Hafdal Framleiðsla on Vimeo.

 

 

Afhending og skemmtun í beinu streymi
Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðar 2020 verður rafræn í ár þar sem íþróttakarl og íþróttakona Hafnarfjarðar hljóta viðurkenningar auk þess að lið ársins verður valið. Hátíðin verður haldin í beinu streymi á miðlum bæjarins þriðjudaginn 29. desember kl. 18:00

Dagskrá íþrótta- og viðurkenningarhátíðar Hafnarfjarðar 2020

 

  • Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona stýrir hátíð og skemmtun ásamt leikaranemunum Arnóri Björnssyni og Óla Gunnari Gunnarssyni
  • Skemmtileg innslög úr Hafnfirsku íþróttalífi
  • Spurningakeppni um hafnfirska íþróttasögu – áramótavinningur fyrir sigurvegarann
  • Úthlutað úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að og ætlaður er til eflingar á íþróttastarfi fyrir yngri en 18 ára
  • Val á íþróttakonu ársins 2020
  • Val á íþróttakarli ársins 2020
  • Val á íþróttaliði ársins 2020
  • Tónlistaratriði

Tilnefningar ársins 2020

Alls hafa tíu tilnefningar verið kynntar í hvorum flokki; íþróttakona ársins 2020 og íþróttamaður ársins 2020. Fjögur lið hafa verið tilnefnd sem lið Hafnarfjarðar 2020.

TilnefningarIthrottafolk2020

TilnefningarIthrottalid2020

Hlökkum til að fagna afrekum ársins 2020 með ykkur – í beinni!
Allir bæjarbúar eru hvattir til að fylgjast með og taka þátt þriðjudaginn 29. desember kl.18:00 

Ábendingagátt