Íþróttafólk Hafnarfjarðar 2025 — 20 einstaklingar og 3 félög

Fréttir

Tuttugu einstaklingar og þrjú félög eru tilnefnd sem Íþróttafólk Hafnarfjarðar 2025. Valið spannar fjölbreytt svið íþróttanna og eru fulltrúarnir sannar fyrirmyndir okkar Hafnfirðinga.

Viðurkenningarhátíðin 30. desember

Tuttugu einstaklingar og þrjú félög eru tilnefnd sem Íþróttafólk Hafnarfjarðar 2025. Valið spannar fjölbreytt svið íþróttanna og eru fulltrúarnir sannar fyrirmyndir okkar Hafnfirðinga. Hátíðin fer fram þriðjudaginn 30. desember kl. 18 í íþróttahúsinu Strandgötu.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd standa fyrir viðurkenningarhátíðinni þar sem íþróttafólk bæjarins verður heiðrað. Val nefndarinnar á íþróttaliði, íþróttakonu og íþróttakarli ársins 2025 verður þar gert opinbert. Velkomin öll.


Þau eru tilnefnd til íþróttafólks Hafnarfjarðar árið 2025

Áhaldafimleikar

Lúkas Ari Ragnarsson, Björk

Badminton

Gerda Voitechovskaja, BH

Borðtennis

Birgir Ívarsson, BH

Dans

Hanna Rún Óladóttir, DÍH

Nikita Bazev, DÍH

Frjálsíþróttir

Aníta Hinriksdóttir, FH

Hilmar Örn Jónsson, FH

Frjálsíþróttir og kraftlyftingar

Aníta Ósk Hrafnsdóttir, Fjörður

Golf

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keilir

Handknattleikur

Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar

Jóhannes Berg Andrason, FH

Knattspyrna

Arna Eiríksdóttir, FH

Sigurður Bjartur Hallsson, FH

Körfubolti

Þóra Kristín Jónsdóttir, Haukar

Skeet

Arnór Logi Uzureau, SÍH

Snjóbretti

Anna Kamilla Hlynsdóttir, BFH

Sund

Birnir Freyr Hálfdánarson, SH

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, SH

Róbert Ísak Jónsson, Fjörður

Taekwondo

Leo Anthony Speight, Björk

Tilnefningar til íþróttaliðs Hafnarfjarðar árið 2025

Fimleikafélag Hafnarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu.

Knattspyrnufélagið Haukar

Meistaraflokkur kvenna í körfubolta.

Sundfélag Hafnarfjarðar

Sameiginlegt lið karla og kvenna

Aðgangur opinn og ókeypis. Við hlökkum til að sjá sem flesta og fagna afrekum ársins 2025 í sameiningu.

 

Ábendingagátt