Jólabærinn Hafnarfjörður klæðir sig í jólafötin

Fréttir

Jólabærinn Hafnarfjörður er á leiðinni í jólafötin þessa dagana og hefur unnið að verkefninu síðustu daga og mun halda því áfram fram að jólum. Ákveðið var að setja jólaljósin snemma upp í ár í ljósi alls og eru íbúar hér með hvattir til að gera slíkt hið sama. Nú þegar hafa jólaljós verið sett upp á nokkrum fjölförnum stöðum í bænum með það fyrir augum að gleðja augað og andann og lýsa upp skammdegið. Jólabærinn Hafnarfjörður er við það að detta í jólagírinn!

Jólabærinn Hafnarfjörður er á leiðinni í jólafötin þessa dagana og hefur unnið að verkefninu síðustu daga og mun halda því áfram fram að jólum. Ákveðið var að setja jólaljósin snemma upp í ár í ljósi alls og eru íbúar hér með hvattir til að gera slíkt hið sama. Nú þegar hafa jólaljós verið sett upp á nokkrum fjölförnum stöðum í
bænum með það fyrir augum að gleðja augað og andann og lýsa upp skammdegið.
Jólabærinn Hafnarfjörður er við það að detta í jólagírinn!

JolinSkreytingarkeppni

Gleðjum augað og
andann og lýsum upp skammdegið

Heilsubærinn Hafnarfjörður hefur lagt ríka áherslu á það
þetta árið að leggja upp hugmyndir að heilsueflingu og hreyfingu fyrir íbúa og vini Hafnarfjarðar. Umferð gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda hefur
verið mikil víðsvegar um Fjörðinn og við helstu náttúruperlur Hafnfirðinga
síðustu vikur og mánuði. Það er því afar ánægjulegt að geta glatt gesti og
gangandi með fallegum jólaljósum nú þegar fyrstu dagar nóvembermánaðar nálgast. 

Við hvetjum Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að taka þátt í því að
fullklæða jólabæinn Hafnarfjörð með því að setja jólaljósin upp snemma í ár. 

Ábendingagátt