Jólabærinn og Hittu mig í Hellisgerði  

Fréttir Jólabærinn

Ása Marin er höfundur rómantísku stefnumótaskáldsögunnar Hittu mig í Hellisgerði. Jólabærinn Hafnarfjörður rammar söguna inn.

Ása Marin semur jólaástarsögu

„Mig langaði að skrifa um konu sem væri óvænt ein um jólin og líkaði ekki tilhugsunin um að setjast ein til borðs á aðfangadag,“ segir Ása Marin höfundur rómantísku stefnumótaskáldsögunnar Hittu mig í Hellisgerði.

Sagan segir af Snjólaugu sem hefur skapað sínar jólahefðir með dóttur sinni en situr nú ein eftir þegar barnsfaðir hennar býður dótturinni til Tene um jólin. Eftir að hafa legið yfir Netflix og séð hverja einmana sálina á fætur annarri finna ástina í jólamyndum ákveður hún að næla sér í jólakæró.

Bók í anda Bridget Jones

Bókin er ekki fyrsta skáldsaga Ás Marinar heldur sú fimmta. Auk þess hefur hún skrifað eina nóvellu og tvær ljóðabækur. Hún lýsir því hvernig fyrsta uppkastið hafi verið dramatískt, jafnvel þunglyndislegt.

„Ég sá fljótt að það hentaði ekki í miðju skammdeginu og tók meiri Bridget Jones-fíling á söguna,“ segir Ása og brosir.

„Þetta er því skemmtileg ljúflestrarbók. Undirtónninn er einmanaleikinn og hræðslan við hann en það er ekki meginþráðurinn í bókinni,“ segir hún en lætur ekkert uppi um það hvort endirinn sé ánægjulegur eftir stefnumótaævintýri söguhetjunnar. „Það bíður lesandans.“

Hafnfirðingur eins og söguhetjan

Ása Marin er, eins að aðalpersóna sögunnar, Hafnfirðingur. Hún hefur búið á Laufvangnum, í Hvömmum, Áslandi og nú aftur í Hvömmunum.

„Og þar sem sagan gerist á aðventunni er tilvalið að Jólabærinn rammi söguna inn,“ segir Ása Marín enda koma Hellisgerði, Jólaþorpið og Hjartasvellið við sögu.

Verður bókin að bíómynd? „Það væri óskandi. Ég sé þessa sögu alveg fyrir mér sem bíómynd eða sem þáttaröð,“ segir Ása Marin.

 

Ása Marin er hafnfirskur rithöfundur sem nýtir heimabæinn í nýjustu skáldsögu sinni Hittu mig í Hellisgerði. Það er rómantísk saga sem jólabærinn rammar inn. Myndir/Óli Már

 

Jólablað Hafnarfjarðar 2024 – vefútgáfa:

Nálgast má jólablaðið á öllum okkar söfnum og sundlaugum? Líka í þjónustuveri.

Ábendingagátt