Jóladagatal Hafnarborgar – Hvar er Völundur?

Fréttir

Hafnarborg telur niður dagana fram að jólum með því að sýna jóladagatalið Hvar er Völundur? milli kl. 16 og 17 alla opnunardaga safnsins í desember fram að jólum. Hvar er Völundur? er jóladagatal sem framleitt var af RÚV árið 1996 og er löngu orðið klassískt. Höfundur þess er Þorvaldur Þorsteinsson listamaður en yfirlitssýning á verkum hans stendur nú yfir í safninu.

JoladagatalVolundur2021

Óvænt ævintýri og Völdunarhús 

Í dagatalinu leita þeir Felix og Gunni að smiðnum Völundi en hann er sá sem smíðar góðu jólagjafirnar. Við leitina lenda félagarnir í óvæntum ævintýrum er þeir þræða sig í gegnum hvert völundarhúsið á fætur öðru. Á ferðalaginu hitta þeir fyrir hina ýmsu skúrka sem reyna hvað þeir geta að leiða þá í ógöngur.

Börn og fjölskyldur eru sérstaklega velkomin en hver þáttur verður og spilaður í endurtekningu milli 16 og 17 dag hvern. Á þriðjudögum er safnið lokað og verða því tveir þættir sýndir á miðvikudögum og eins verða tveir þættir sýndir á Þorláksmessu. Sýningin fer fram í hlýlegri hliðarstofu á efri hæð safnsins. Aðgangur er ókeypis inn á safnið.

Hvarervolundur

Ábendingagátt