Árleg jólagjöf Áslandsskóla til Mæðrastyrksnefndar

Fréttir

Undanfarin þrettán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Ásta Eyjólfsdóttir formaður nefndarinnar kom á jólaskemmtun í Áslandsskóla á dag, föstudaginn 20. desember, og tók við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.

LeifurMaedrastyrksnefnd

Í ár söfnuðust 239.125.- krónur sem runnu að sjálfsögðu óskertar til nefndarinnar.  Á þrettán árum hefur skólasamfélagið í Áslandi því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 3.124.532.- krónur. Þessi hugsun nemenda, foreldra og starfsfólks Áslandsskóla til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið. Fleiri skólar í Hafnarfirði hafa fylgt fordæmi skólans og styrkja nú Mæðrastyrksnefnd í stað pakkaleikja.

Áfram skólasamfélagið í Hafnarfirði! 

Ábendingagátt