Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar um helgina

Fréttir

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað á morgun kl. 17, fyrsta föstudag í aðventu, og verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni auk opnunar á Þorláksmessukvöld. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á miðju Thorsplani fyrr um daginn í fámenni og er jólatréð sem fyrr gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi. Færri komust að en vildu í jólahúsunum í Jólaþorpinu í ár og ljóst að þessi vinalegi og vinsæli jólamarkaður hefur stimplað sig inn í hug og hjörtu margra og er orðinn hluti af hefðum aðventunnar, bæði hjá söluaðilum í fallegu jólahúsunum og hjá gestum og gangandi.

Þú finnur jólaandann í Hafnarfirði

Litlu jólahúsin á Thorsplani fyllast af lífi, vörum og
varningi strax á morgun

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað á morgun kl. 17,
fyrsta föstudag í aðventu, og verður opið alla laugardaga og sunnudaga á
aðventunni auk opnunar á Þorláksmessukvöld. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á
miðju Thorsplani fyrr um daginn í fámenni og er jólatréð sem fyrr gjöf frá
Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi. Færri komust að en vildu í
jólahúsunum í Jólaþorpinu í ár og ljóst að þessi vinalegi og vinsæli
jólamarkaður hefur stimplað sig inn í hug og hjörtu margra og er orðinn hluti
af hefðum aðventunnar, bæði hjá söluaðilum í fallegu jólahúsunum og hjá gestum
og gangandi. Jólasveinarnir koma í heimsókn í Jólaþorpið á laugardögum og Grýla
verður á vappi um miðbæinn á sunnudögum. 

281120_Jolathorpid-24-of-44-

Nýjungar í bland við það sem hefur alltaf slegið í gegn

Litlu fagurlega skreyttu jólahúsin í Jólaþorpinu í
Hafnarfirði eru landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiss konar gjafavöru,
handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann ásamt gómsætum
veitingum til að borða á staðnum og ljúfmeti til að taka með heim á veisluborðið.
Kapp er lagt á að bjóða upp á fjölbreytta vöru og varning í jólahúsunum og er
óhætt að segja að eftirspurn og aðsókn í jólahúsin í ár hafi slegið öll met. Í
ár er bryddað upp á nýjungum auk þess að bjóða upp á vöru sem hefur slegið í
gegn árum saman. Eldstæðið mun þannig t.d. vera með fullt hús af góðgæti frá
smáframleiðendum sínum en Eldstæðið er atvinnueldhús fyrir matarfrumkvöðla og
smáframleiðendur sem byggir á deilihagkerfinu. Hinn kraftmikli og metnaðarfulli
ungi bakari Gulli Arnar, sem tekur samnefnt handverksbakarí í Hafnarfirði, mun
bjóða sínar kræsingar til sölu allar helgar á aðventunni og það í fyrsta sinn.
Bændurnir á Ytra-Hólmi munu standa vaktina í sínu húsi allar aðventuhelgarnar
líkt og fyrri ár og bjóða til sölu beint frá býli ferskt og reykt lambakjöt,
sósur og alls kyns meðlæti eins og kæfur. Þessir og fjöldi annarra spennandi
söluaðila verða með jólahús í ár auk þess sem víkingafélagið Rimmugýgur verður
með handverksmarkað rétt hjá Thorsplani fyrstu aðventuhelgina.

281120_Jolathorpid-39-of-44-

Óvæntar uppákomur og öðruvísi dagskrá

Óvæntar uppákomur og öðruvísi jóladagskrá verður undirtónn
hátíðarhaldanna í Hafnarfirði þetta árið líkt og á síðasta ári. Áhersla er lögð
á jólabæinn Hafnarfjörð og á ljósadýrð og skreytingar sem henta vel árferðinu
og tryggja að allir geti notið aðventunnar af öryggi og án hópamyndanna. Andi
jólanna hefur verið færður yfir á miðbæ Hafnarfjarðar í heild sinni og
auðveldlega hægt að nýta heilu dagana á aðventunni til að upplifa og njóta í
Hafnarfirði með heimsókn í Jólaþorpið, í jólaævintýralandið í Hellisgerði,
verslun og þjónustu um allan bæ, ferð í sundlaugar bæjarins og á söfnin hvar
aðgangur er ókeypis og njóta veitinga í þeirri fjölbreyttu flóru veitingahúsa
og kaffihúsa sem hafa risið í Hafnarfirði síðustu misserin. Jólabærinn Hafnarfjörður tekur hlýlega á móti
Hafnfirðingum og vinum Hafnarfjarðar.

Allar upplýsingar um Jólaþorpið í Hafnarfirði er að finna á Facebook-síðu Jólaþorpsins

Ábendingagátt