Jólatré ekki sótt heim eftir jól

Fréttir

Hafnarfjarðarbær vill vekja sérstaka athygli á því að bærinn mun ekki hirða jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina í ár líkt og síðustu tvö árin. Því hefur verið beint til félagasamtaka að opnast hefur á þann möguleika að þau taki verkefnið að sér. 

Af gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær vekja sérstaka athygli á því að bærinn mun ekki hirða jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina.  Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 21. september 2016 og hafa jólatré ekki verið sótt heim síðan þá.  

Sorpa tekur vel á móti öllum trjám eftir hátíðarnar – opnunartíma Sorpu er að finna HÉR

Ábendingagátt