Jólatré ekki sótt heim eftir jólahátíðina
Af gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær vekja sérstaka athygli á því að bærinn hirðir ekki jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina. Bent er á að íþróttafélög og félagasamtök eru í dag farin að bjóða upp á þá þjónustu að sækja jólatré heim að dyrum á ákveðnum degi gegn gjaldi sem lið í fjáröflun sinni. Við hvetjum áhugasama til að kynna sér þá þjónustu.
Tilkynning vegna jólatrjáa
Af gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á því að bærinn hirðir ekki jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina. Ákvörðun þess efnis var tekin þann 21. september 2016 og hafa jólatré ekki verið sótt heim síðan þá.
Bent er á að íþróttafélög og félagasamtök eru í dag farin að bjóða upp á þá þjónustu að sækja jólatré heim að dyrum á ákveðnum degi gegn gjaldi sem lið í fjáröflun sinni. Við hvetjum áhugasama til að kynna sér þá þjónustu.
Körfuknattleiksdeild Hauka sækir jólatréð heim að dyrum í Hafnarfirði föstudaginn 7. janúar 2022
Sorpa tekur á móti öllum trjám eftir hátíðarnar – opnunartíma Sorpu er að finna hér