Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu föstudaginn 29. nóvember. Jólatréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi. Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir flytja nokkur jólalög og Björgvin Halldórsson og Auður syngja.
Fyrstu opnunarhelgina stelast jólasveinarnir úr Dimmuborgum í heimsókn og bregða á leik með gestum jólaþorpsins en aðrar opnunarhelgar sjá hinir rauðklæddu jólasveinar og Grýla um að kynna dagskrána og bjóða uppá myndatökur í sérútbúnum myndakassa. Jólaþorpið verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni frá kl. 13-18 og iðar af lífi og fjöri í kringum jólin þar sem gestir Hafnarfjarðar fá að njóta skemmtidagskrár á Thorsplani, kíkja í litlu jólahúsin og verslanir, veitingastaði og söfn bæjarins í nágrenninu.
Litlu fagurlega skreytt jólahúsin í Jólaþorpinu í Hafnarfirði eru orðin landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiss konar gjafavöru, handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann ásamt gómsætum veitingum til að borða á staðnum og ljúfmeti til að taka með heim á veisluborðið. Hægt er að kynna sér dagskrána á jolathorpid.is og hafnarfjordur.is en alla opnunarhelgina verður af nægu að taka fyrir alla fjölskylduna. Á laugardag mun Guðrún Árný leika nokkur jólalög og Tónafljóð verða með ævintýralega jólaskemmtun. Á sunnudag koma þær Skoppa og Skrítla og skemmta og Heiðar úr Pollapönki og Þröstur stýra jólaballi kl. 15:00.
Nánari upplýsingar veitir Andri Ómarsson, verkefnastjóri viðburða, í síma 6645779
DAGSKRÁ JÓLAÞORPSINS helgina 29. nóvember – 1. desember 2019
– – – – – – – – – – – – – – – – – –
Föstudagurinn 29. nóvember frá kl. 17:00 – 20:00
Jólasveinarnir úr Dimmuborgum koma í heimsókn og bregða á leik með börnunum og Bettína verður á ferli á Strandgötunni með hestvagninn sinn og geta áhugasamir fengið jólarúnt um bæinn fyrir sanngjarnt verð. Kynnir er Skjóða.
– – – – – – – – – – – – – – – – – – –
Laugardagurinn 30. nóvember frá kl. 13:00 – 18:00
Jólasveinarnir úr Dimmuborgum verða á vappi um bæinn og kynna dagskrána frá kl. 14:00 – 16:00. Bettína verður á ferli á Strandgötunni með hestvagninn sinn frá kl. 13:00 – 18:00 og geta áhugasamir fengið jólarúnt um bæinn fyrir sanngjarnt verð.
Sunnudagurinn 1. desember frá kl. 13:00 – 18:00
Takið eftir að Strandgatan frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Salernisaðstaða fyrir gesti er bakvið sviðið á Thorsplani.
Allir velkomnir!
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…