Kaldárselsvegur – lokanir vegna framkvæmda 8. maí

Fréttir

Fjórða og síðasta lokunin miðvikudaginn 8. maí. Stefnt er að því að malbika vegbúta út frá hringtorgi við Elliðavatnsveg. Gert er ráð fyrir að lokað verði frá morgni til kvölds.

Vegna malbikunarframkvæmda við Kaldárselsveg er ekki hjá því komist að röskun verði á umferð um svæðið vegna lokana á vegköflum sem merktir eru á yfirlitsmynd. Röskun á umferð vegna lokana verður um eftirtaldar götur en þó á mismunandi tímum:

  • Kaldárselsvegur
  • Elliðavatnsvegur
  • Brekkuás
  • Klettahlíð


Fjórða og síðasta lokun – miðvikudaginn 8. maí

Stefnt er að því að malbika vegbúta út frá hringtorgi við Elliðavatnsveg, sjá mynd. Framhjáhlaup verður um Hvaleyrarvatnsveg fyrir hesthús og skógrækt. Merkingar verða settar upp á svæðinu. Gert er ráð fyrir að lokað verði frá morgni til kvölds.

LokunKaldarselsvegur8mai2019

KaldarselsvegurLokanirApril2019

Bestu þakkir fyrir tillitssemina.

Ábendingagátt