Kjörskrá í Hafnarfirði

Fréttir

Kjörskrá í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Hafnarfjarðar.

Kjörskrá í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 26. maí 2018 liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Hafnarfjarðar, þjónustuveri, Strandgötu 6, frá kl. 8-16 alla virka daga frá 16. maí 2018.

Kjósendum er einnig bent á vefinn www.kosning.is en þar má finna hvar kjósendur eru á kjörskrá.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beina til bæjarráðs Hafnarfjarðar.

Kjörskrá var lögð fram á fundi bæjarráðs 15. maí. Á kjörskrá í Hafnarfirði eru 20.786.

Ábendingagátt