Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ný ljósmyndasýning opnaði formlega í Bókasafni Hafnarfjarðar laugardaginn 24. september, sýning sem unnin er í samvinnu Hafnarfjarðarbæjar við sendiráð Þýskalands og Japans. Ljósmyndari og eigandi sýningarinnar er Þjóðverjinn Thomas Hoeren sem valdi Hafnarfjörð sem sýningarstað vegna sterkra tengsla bæjarins og bókasafnsins við Þýskaland. Sýningin verður opin á opnunartíma bókasafnsins dagana 23. september -23. nóvember. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Sendiherrar Japan og Þýskalands með ljósmyndaranum Thomas Hoeren og Rósu Guðbjarsdóttur bæjarstjóra Hafnarfjarðar.
Orðið Kitsch er oft tengt við ósmekklegan stíl, en einmitt vegna þverþjóðleika síns er meira í orðinu falið en rósbleik smekkleysa. Hér er átt við aldagamla mannlega þörf fyrir öryggi og persónumyndir í einkarými sínu. Þetta sýna myndir á ljósmyndasýningunni Kitch af klisjukenndum skrautmunum sem þýski ljósmyndarinn Thomas Hoeren tók á árunum 2010-2019 í þremur mismunandi borgum sem gætu varla verið ólíkari. Sýningin endurspeglar sterkt mismun borganna en varpar einnig ljósi á ákveðin grunnlíkindi á sama tíma, nefnilega þörfina fyrir að skreyta híbýli með hlutum sem veita vellíðan.
Ljósmyndasýningin Kitch endurspeglar á sama tíma líkindi og mismun þriggja borga. Sýningin er á þremur hæðum.
Borgirnar sem fyrir valinu urðu eru Reykjavík, Berlín og Itoshima. Ísland á sína eigin hefð fyrir kitsch, oft frekar kallað punt. Eins og skjalfest hefur verið í Reykjavík, setja Íslendingar tákn um náttúru sína í m.a. glugga hýbýla sinna. En kitsch má líka finna í görðum og gluggum í Berlín, höfuðborg Þýskalands, allt eftir árstíðum og hátíðum, eins og vorbyrjun. Að lokum er það Itoshima, lítill bær í Kyushuhéraði í Japan. Þar er kitsch að finna sem skraut ekki í gluggum heldur í smágörðum framan við hús og sem skraut á sjónvarpstækjum. Algengustu mótífin eru frá vestrænni menningu, til dæmis plastfígúrur innblásnar af Walt Disney og myndir af hundum. Ljósmyndarinn Thomas Hoeren (fæddur 1961) er lagaprófessor frá Münster (Þýskalandi), lektor við Münster Art Academy og atvinnuljósmyndari. Myndir hans hafa verið sýndar í Þýskalandi, Japan, Austurríki og Íslandi og eru skráðar í fjölmörgum myndabindum.
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…