Komdu ábendingum þínum á framfæri!

Fréttir

Ný ábendingagátt fyrir Hafnarfjarðarbæ var sett í loftið í mars 2020 og eru þegar farnar að berast hátt í 150 ábendingar á mánuði hverjum frá áhugasömum íbúum sem umhugað er um umhverfi sitt og bæinn í heild. 

Ný ábendingagátt fyrir Hafnarfjarðarbæ var sett í loftið í mars 2020 og eru þegar farnar að berast hátt í 150 ábendingar á mánuði hverjum frá áhugasömum íbúum sem umhugað er um umhverfi sitt og bæinn í heild. Allar ábendingar fara í ákveðið ferli á viðeigandi sviði allt eftir efni og eðli þeirra. Sumar ábendingar er hægt að afgreiða fljótt og örugglega en afgreiðsla og ákvarðanir vegna stærri ábendinga geta tekið lengri tíma.

Komdu ábendingum þínum á framfæri með einföldum hætti

Í gegnum ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar geta íbúar komið hvers konar ábendingum á framfæri með einföldum hætti. Einfalt er að senda mynd með ábendingunni og möguleiki er á því að senda staðsetningu á korti ef það á við. Ábendingagáttin virkar mjög vel í snjalltækjum og eru íbúar hvattir til að grípa símann verði þeir varir við eitthvað sem má fara betur í okkar umhverfi, þjónustu eða öðru sem ástæða er til að koma á framfæri við starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar.

Abending-demo

Hér má sjá eitt gott dæmi um það sem betur má fara

Við fögnum öllum ábendingum!

Hver og ein ábending mun aðstoða okkur við að gera þjónustuna enn betri. Mótað hefur verið skýrt ábyrgðarferli. Starfsfólk þjónustuvers fer yfir ábendingarnar, svarar eða kemur þeim í réttan farveg innan 24 klst alla virka daga. Sendandi fær tölvupóst um leið og svar liggur fyrir. Hægt er að tengjast ábendingagáttinni frá forsíðu vefsins eða með því að slá inn slóðina www.hafnarfjordur.is/abendingar

Öflugri ábendingagátt í þróun í samstarfi fleiri sveitarfélaga

Þessi gátt er afrakstur góðrar samvinnu starfsfólks á öllum sviðum bæjarins en fyrirmyndin að gáttinni er sótt til Reykjavíkurborgar. Þó þessi áfangi sé í höfn þá er þetta aðeins fyrsta útgáfa ábendingagáttarinnar því Hafnarfjarðarbær á í samstarfi við þrjú önnur sveitarfélög; Reykjavík, Kópavog og Árborg, um áframhaldandi þróun ábendingagáttar með öflugu bakendakerfi og tengingu við Mínar síður . Verkefnið er það fyrsta af vonandi fjölmörgum þar sem sveitarfélög taka saman höndum við að smíða öflugar stafrænar lausnir sem bæta þjónustu og lífsgæði íbúa.

Það er ekki eftir neinu að bíða. Sendu okkur ábendingu!

Ábendingagátt