Komdu að starfa með okkur. Fjölbreytt störf í boði!

Fréttir

Á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða framtíðarstörf, fullt starf eða hlutastörf sem tilvalin eru með skóla. Einnig jafnvel störf til skemmri tíma. 

Ertu í atvinnuleit og langar að starfa í gefandi og skemmtilegu starfsumhverfi? Komdu að starfa með okkur!

Yfirlit yfir öll laus störf hjá sveitarfélaginu

Á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða framtíðarstörf, fullt starf eða hlutastörf sem tilvalin eru með skóla. Einnig jafnvel störf til skemmri tíma. 

Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rétt um 2000 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum störfum og verkefnum á um 70 ólíkum starfsstöðvum um allan bæ. Rík áhersla er lögð á það að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á og sem sinnir sínu starfi af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Sérstök athygli er vakin á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Laus störf hjá Hafnarfjarðarbæ í upphafi desember 2021: 

  • Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Lækjarsel – Lækjarskóli
  • Þroskaþjálfi – Setbergsskóli
  • Skóla- og frístundaleiðbeinandi – Öldutúnsskóli
  • Námsráðgjafi í tímabundið starf til 1. árs – Lækjarskóli
  • Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
  • Deildarstjóri UT tölvuumsjónar – Hvaleyrarskóli
  • Skóla- og frístundaliði – Skarðshlíðarskóli
  • Skóla- og frístundaliði – Víðistaðaskóli
  • Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Setbergsskóli
  • Kennari óskast til starfa – Leikskólinn Smáralundur
  • Aðstoða í eldhúsi – Leikskólinn Álfasteinn
  • Sérkennari – Hraunvallaleikskóli
  • Kennari (50%) óskast til starfa – Leikskólinn Hörðuvellir
  • Kennari óskast til starfa – Leikskólinn Hörðuvellir
  • Kennari óskast til starfa – leikskólinn Norðurberg
  • Kennari óskast til starfa – Skarðshlíðarleikskóli
  • Kennari óskast til starfa – Leikskólinn Tjarnarás
  • Kerfisstjóri netbúnaðar óskast til starfa í þróunar- og tölvudeild

Veistu ekki hvað þú vilt verða þegar þú verður stór?

Spennandi tækifæri og möguleikar eru opnir fyrir ófaglært starfsfólk innan leikskóla Hafnarfjarðarbæjar. Þannig veitir bærinn styrki til þeirra sem vilja stunda nám í leikskólakennarafræðum, bæði þeim sem hafa starfað hjá sveitarfélaginu til fjölda ára og nýliðum.

Nánar um námsstyrki – frétt síðan 2020 

Ábendingagátt