Komdu í sund á aðventunni og yfir jólahátíðina
Opnunartími sundlauganna í Hafnarfirði verður aukinn yfir jólahátíðina sem vonandi eykur líkurnar á því að sem flestir geti notið. Bendum sérstaklega á að hægt er að fylgjast með raunfjölda sundlaugagesta hverju sinni á vef bæjarins.
Það ættu allir að komast í jólasundið – opnunartími aukinn yfir jólahátíðina!
Jólasund er góð samverustund og sundlaugarnar í Hafnarfirði vel til þess fallnar að uppfylla þarfir allra samfélagshópa enda ólíkar. Sundlaugarnar eru þrjár og hafa þær allar sína sérstöðu og sjarma. Þannig einkennir Sundhöll Hafnarfjarðar gömul saga og rólegt andrúmsloft, Ásvallalaug fjölskylduvænt umhverfi og heitur salur fyrir yngri börnin og Suðurbæjarlaug fallegt og gott útisvæði og útilaug.
Opnunartími yfir jólahátíðina 2020 er sem hér segir:
| Ásvallalaug | Suðurbæjarlaug | Sundhöll Hafnarfjarðar | |
| 23. desember | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 21:00 |
| 24. desember | 06:30 – 13:00 | 06:30 – 13:00 | 06:30 – 11:00 |
| 25. desember | Lokað | Lokað | Lokað |
| 26. desember | 08:00 – 18:00 | 08:00 – 18:00 | Lokað |
| 27. desember | 08:00 – 17:00 | 08:00 – 17:00 | Lokað |
| 28. desember | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 21:00 |
| 29. desember | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 21:00 |
| 30. desember | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 22:00 | 06:30 – 21:00 |
| 31. desember | 06:30 – 13:00 | 06:30 – 13:00 | 06:30 – 11:00 |
| 1. janúar | Lokað | Lokað | Lokað |
Sjá hefðbundinn opnunartíma sundlauga í Hafnarfirði
Fjöldatakmarkanir í sundlaugarnar
Þessa dagana er sundlaugunum heimilt að taka á móti allt að 50% af hámarksfjölda gesta og mun þessi takmörkun gilda til og með 12. janúar 2021 nema annað sé auglýst. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Þetta þýðir að hámarksfjöldi í hverri laug er eftirfarandi:
- Ásvallalaug – 160 gestir
- Suðurbæjarlaug – 80 gestir
- Sundhöll Hafnarfjarðar – 32 gestir
Hvað eru margir í sundi núna?
Strax í upphafi Covid19 þegar ljóst var að faraldurinn myndi hafa áhrif á þjónustu sundlauga sveitarfélagsins var ákveðið að setja í loftið upplýsingasíðu um fjölda gesta í hverri laug til að lágmarka og helst koma í veg fyrir bið eftir plássi í laugina. Á síðu hverrar sundlaugar má sjá raunupplýsingar um fjölda gesta í hverri laug og hversu mörg pláss eru laus.
Hér má nálgast rauntímaupplýsingar um fjölda gesta í hverri laug
Við erum ÖLL almannavarnir
Gestir eru hvattir til að gæta að 2 metra reglu í hvívetna og gæta fyllsta hreinlætis en samstarf í almannavörnum er forsenda þess að hægt er að hafa laugarnar opnar.
Gleðileg jól og farsælt komandi sundár!
Sjáumst í sundi! 🙂