Komdu út að leika í vetrarfríinu!

Fréttir

Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 23. október og þriðjudaginn 24. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skipulagðri og skemmtilegri dagskrá, skemmtilegu bingói eða einfaldlega nýta þau tækifæri og möguleika sem leynast út um allt í Hafnarfirði til heilsueflingar og fallegra samverustunda fjölskyldunnar.

Vetrarfrí í grunnskólum Hafnarfjarðar 23. og 24. október

Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 23. október og þriðjudaginn 24. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skipulagðri og skemmtilegri dagskrá, skemmtilegu bingói eða einfaldlega nýta þau tækifæri og möguleika sem leynast út um allt í Hafnarfirði til heilsueflingar og fallegra samverustunda fjölskyldunnar. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð. Frítt verður í sund í öllum laugum bæjarins báða dagana.

Mánudagur 23. október

  • FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöll til kl. 21
  • Byggðasafn Hafnarfjarðar: Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar. Opið kl. 11-15
  • Bókasafn Hafnarfjarðar: Kósíbíó í fjölnotasal frá kl.12-14. Teppi, grjónapokar, koddar og kósí! Komdu í bíó á Bókasafni Hafnarfjarðar! Smiðja í barnadeild – gerum okkar eigin bókakápur! frá kl. 13 – 15. Viltu skrifa bók? Eða kannski betrumbæta bók? Við búum til bókarkápur saman á barnadeildinni! Harry Potter ratleikur í gangi um bókasafnið allan daginn.
  • Hafnarborg: Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir myndlistarkona verður með listasmiðju í Apótekinu kl. 13-15. Smiðjan tengist sýningunni GILDI þar sem sýnd verða listaverk út safneign Hafnarborgar.

Þriðjudagur 24. október

  • Dagur Kvennaverkfalls 2023. Skert þjónusta verður á starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar s.s. í sundlaugum og söfnum.

Taktu í spaðann í vetrarfríinu!

Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður börnum, unglingum og foreldrum sem eru í bænum í vetrarfríinu að koma í badminton og borðtennis í íþróttahúsið við Strandgötu þessa daga. Opnir tímar fyrir skráða iðkendur hjá BH og foreldra þeirra verða mánudaginn 23.október og þriðjudaginn 24.október kl. 10-12. Einnig verða hefðbundnir æfingatímar samkvæmt æfingatöflu seinnipart dags þessa báða daga fyrir skráða iðkendur. Opnir tímar fyrir börn og foreldra sem ekki eru skráð í félagið verða mánudaginn 23.október og þriðjudaginn 24.október kl.13-15. Mikilvægt er að skrá sig í þessa tíma þar sem pláss er takmarkað en aðgangur er ókeypis. Þjálfarar BH verða á staðnum báða dagana og taka vel á móti öllum. Spaðar og kúlur verða til láns fyrir þau sem þurfa.

Skráning

Að auki hefur Heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman heilt stafróf af hugmyndum að fjölmörgu spennandi og skemmtilegu sem fólk getur tekið sér fyrir hendur heimavið eða í næsta nágrenni. Þar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum að einhverju nýju og öðruvísi að gera einn eða með fjölskyldunni. Hér á vefnum er einnig hægt að nálgast lista yfir sérstæð náttúrufyrirbrigði og áhugaverða staði og fjölda göngu- og hjólaleiða sem liggja um Hafnarfjörð.

Heilsubærinn Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt skemmtilegu bingói í vetrarfríinu en þar má finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna.

Heilsubærinn Hafnarfjörður óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs vetrarfrís!

Ábendingagátt