Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Niðurstöður viðhaldsúttektar á jafnlaunakerfi Hafnarfjarðarbæjar sýna áframhaldandi jákvæða þróun í átt að launajafnrétti innan sveitarfélagsins. Óútskýrður launamismunur er ekki lengur til staðar og frávik minnka enn frekar milli úttekta.
Niðurstöður viðhaldsúttektar á jafnlaunakerfi Hafnarfjarðarbæjar sýna áframhaldandi jákvæða þróun í átt að launajafnrétti innan sveitarfélagsins. Óútskýrður launamismunur er ekki lengur til staðar og frávik minnka enn frekar milli úttekta, er nú 2%, körlum í hag og hefur þannig minnkað um 2,8% frá því að sveitarfélagið fékk jafnlaunavottun fyrir tveimur árum síðan.
Viðhaldsvottun, sem framkvæmd var nú í ágúst af BSI á Íslandi, faggildum vottunaraðila, leiðir í ljós 1,4% minni frávik en mældist í síðustu úttekt í desember 2018. Í ágúst 2017 var frávikið 4,8%, karlmönnum í hag, í desember 2018 3,4% en mælist nú, eftir að mælingar fóru af stað, í sögulegu lágmarki eða 2%. Jafnframt kemur fram í niðurstöðunum að engan óútskýrðan launamun sé lengur að finna í störfum sveitarfélagsins. Niðurstöður viðhaldsvottunar BSI á Íslandi staðfesta að sveitarfélagið uppfyllir áfram þær kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012. Hafnarfjarðarbær var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að fá jafnlaunavottun og jafnlaunamerkið frá velferðarráðuneytinu í ágúst 2017.
Árangur er afrakstur samstarfs og markvissra aðgerða
Sveitarfélagið starfar samkvæmt jafnréttis- og mannréttindastefnu sem samþykkt var í febrúar 2017 og jafnréttisáætlun sem er aðgerðaáætlun í jafnréttismálum, unnin er til fjögurra ára í senn. „Við höfum tekið jafnlaunavinnu okkar mjög alvarlega og afraksturinn hefur ekki látið á sér standa. Óútskýrður launamunur heyrir nú sögunni til og þróun í kynbundnum launamun í þessu langtímaverkefni mjög jákvæð á stuttum tíma. Árangurinn er afrakstur vinnu stjórnenda sveitarfélagsins og hefur verið einhugur innan hópsins að ná þessu markmiði“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sem er að vonum stolt af árangrinum og ánægð með niðurstöður úttektar. Síðustu mánuði og ár hefur mikil vinna átt sér stað í jafnlaunakerfinu og ráðist í aðgerðir sem mótaðar og markaðar hafa verið milli úttekta. Jafnlaunakerfið veitir stjórnendum skýra sýn á launagreiningar, úrbótaverkefni, eftirfylgni með aðgerðum og staðfestingu þess að settri jafnréttisstefnu sé fylgt eftir. Samhliða hafa ákveðnar skipulagsbreytingar verið gerðar sem styðja eiga við framtíðaruppbyggingu jafnlaunakerfisins og ráðinn mannauðsfulltrúi til að styðja við málaflokkinn. Framundan er áframhaldandi vinna við yfirferð á starfaflokkun og rýni starfslýsinga ásamt því að gera aðgengi að upplýsingum betra.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…