Kynningarfundur fyrir Hraun Vestur

Fréttir

Taktu þátt í mótun nýs hverfis og andlit Hafnarfjarðarbæjar

 Miðvikudaginn 14. Mars næst komandi
verður Skipulags- og byggingarráð með kynningarfund þar sem
framtíðarsýn Hraun Vesturs verður kynnt.
Fundurinn fer fram í Bæjarbíói kl 20:00 og eru allir sem eru áhugasamir um
uppbyggingu og framtíð þessa svæðis hvattir til að koma og taka þátt í mótun
framtíðar þessa nýja andlits 
Hafnarfjarðar.

Á hönnunarstiginu hefur hverfið fengið viðurnefnið „Fimm
mínútna“ hverfið. Hugmyndin gengur út á að íbúar geti fengið flesta þjónustu í
fimm mínútna göngufjarlægð frá miðju hverfisins. Í Hraun-Vestur mun kveða
við nýjan tón í skipulagsmálum þar sem áhersla verður lögð á góða blöndun
íbúabyggðar, þjónustu, létts iðnaðar, verslana,
skóla-, dagvistunar- og frístundasvæða. Bílastæði og bílastæðahús
verða undir byggðinni að miklu leyti og spennandi útfærslur eru á götumynd
að norrænni fyrirmynd. Á sama tíma og aðgengi að almenningssamgöngum
sér eins og best verður á kosið.

Hugmyndin að Hraun-Vestur hefur verið í þróun í nokkur ár en lengi
hefur verið kallað eftir nýrri sýn á „framhlið“ Hafnarfjarðar.
 Unnið hefur verið að þessum hugmyndum allt kjörtímabilið. En þar er
leitast við að mæta kröfum nýrra kynslóða sem eru að fara að koma sér upp
heimili en um leið spennandi kosti fyrir fólk sem er komið á þann stað í lífinu
að vilja minnka við sig og hafa viðhald í lágmarki og vera í nálægð við
miðbæjarþjónustustig.

Hraun-Vestur er ekki bara ný framtíðarsýn heldur er hverfið ef
af verður nýtt glæsilegt andlit Hafnarfjarðar og þess vegna mikilvægt að sem
flestir komið að mótun þessara hugmynda. Það eru allir velkomnir á
kynningarfundinn á meðan húsrúm leyfir. 

Ábendingagátt