Leggjum mikla áherslu á úrbætur við gatnamót í Hafnarfirði

Fréttir

Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar segir sameiginlega viljayfirlýsingu forsvarsmanna sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu mikilvæga í áframhaldandi viðræðum við ríkið um næstu skref í samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og vill sjá skýra áætlun um öryggi vegfarenda.

Forsvarsmenn sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu skrifuðu á dögunum undir viljayfirlýsingu um viðræður um
fjárfestingar í stofnvegum og hágæðakerfi almenningssamgangna á
höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar segir sameiginlega
yfirlýsingu mikilvæga í áframhaldandi viðræðum við ríkið um næstu skref í
samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og vill sjá skýra áætlun um öryggi
vegfarenda.

Í sameiginlegri viljayfirlýsingu kemur
fram að undirritaðir aðilar séu sammála um að stefna skuli að sjálfbæru,
kolefnishlutlausu borgarsamfélagi og öflugri almenningssamgöngum með
fjölbreyttum ferðamátum í takt við loftslagsáætlun stjórnvalda og áherslur
sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stofnaður hefur verið verkefnahópur
undir forystu Hreins Haraldssonar, fyrrverandi Vegamálastjóra, sem mun skila
tillögum 15. nóvember nk. Tillögurnar þurfa að taka tillit til markmiða í
samgönguáætlun 2018-2033, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018-2030 og áætlun
um loftgæði á Íslandi 2018-2029. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
Hafnarfjarðarbæjar, segir ánægjulegt að sjá í nýrri
samgönguáætlun að framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar haldi áfram á
næsta ári, en vill jafnframt sjá skýra áætlun um að öryggi vegfarenda verði
tryggt frekar með því að það verkefni verði klárað fyrr en nú lítur út fyrir. „Við
Hafnfirðingar leggjum líka mikla áherslu á að farið verði í úrbætur á
gatnamótum við Lækjargötu annars vegar og Kaplakrika hins vegar og það fyrr en
síðar. Ástandið á Reykjanesbrautinni í gegnum Hafnarfjörð er algjörlega
óviðunandi, þar sem um 45.000 bifreiðar aka í gegnum á degi hverjum og erfiðar
umferðarstíflur myndast í miðjum bænum“. 
Í viljayfirlýsingunni er líka
kveðið á um viðræður um framkvæmdir við almenningssamgöngur en
Rósa segir að fyrsta verkefnið þar verði að komast að samkomulagi um
fjármögnun og rekstur þeirra. „Brýnast í mínum huga á næstu árum er að leysa
þær umferðarstíflur sem blasa við í dag og sjá fram á fjármögnun framkvæmda
vegna þeirra“ 
segir Rósa. 

Skipuðum verkefnahópi er ætlað að skila
tillögum sem eyða muni flöskuhálsum, til þess að bæta umferðarflæði og efla
umferðaröryggi. Niðurstöður hópsins verða svo lagðar fyrir ríkisstjórn og
bæjarstjórnir og borgarstjórn til staðfestingar en þær tillögur sem kalla á
breytingu á samgönguáætlun munu fara til Alþingis.

Ábendingagátt