Leiguíbúðir í Skarðshlíð tilbúnar í nóvember

Fréttir

Tólf leiguíbúðir í Skarðshlíð verða tilbúnar til afhendingar um miðjan nóvember. Leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Skarðshlíð íbúðarfélag hses og Modulus eignarhaldsfélag gerðu með sér samning um uppbygginguna í maí á síðasta ári.

Öruggt húsnæði í langtímaleigu fyrir tekjulága einstaklinga og fjölskyldur.

Tólf leiguíbúðir í Skarðshlíð verða tilbúnar til afhendingar um miðjan nóvember. Leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Skarðshlíð íbúðarfélag hses og Modulus eignarhaldsfélag gerðu með sér samning um uppbygginguna í maí á síðasta ári. Stofnaðili Skarðshlíðar íbúðarfélags hses er Hafnarfjarðarbær og er hugmyndafræðin til framtíðar að íbúar sjái sjálfir um stjórn og rekstur félagsins.

Skardshlidhses2Húsin verða afhent fullbúin þann 15. nóvember næstkomandi.

Verksamningur milli Skarðshlíðar íbúðafélags hses. og Modulus eignarhaldsfélags um byggingu almennra leiguíbúða í Skarðshlíð var undirritaður í maí 2018. Um er að ræða samning um uppbyggingu á 12 íbúðum á lóðunum Hádegisskarð 12 og 16 í Skarðshlíð og mun Modulus skila þeim fullbúnum nú um miðjan nóvember. Sex íbúðir eru á hvorri lóð, í heild 6 tveggja herbergja 50m2 íbúðir, 4 þriggja herbergja 60m2 íbúðir og 2 fjögurra herbergja 80m2 íbúðir. Opnað hefur verið fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur til og með 10. nóvember. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði um tekjumörk, eiga lögheimili í Hafnarfirði og vera eldri en 18 ára. Allar fyrstu umsóknir um íbúðir fara í pott og verður umsækjendum raðað í númeraröð með útdrætti. Þannig eiga allir gjaldgengir umsækjendur jafna möguleika á úthlutun. Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðarbæjar fær tvær íbúðir af þessum tíu í félagslegt húsnæðiskerfi sveitarfélagsins. 

„Með þessu er verið að fara nýjar leiðir í þjónustu og verkefnum sveitarfélags til að koma betur til móts við íbúa og hér er sannarlega um ákveðna nýsköpun að ræða. Í þessu tilviki er verið að leita leiða fyrir þá sem eru á mörkum þess að vera of tekjuháir fyrir félagslegt húsnæði en samt með of lágar tekjur fyrir hinn almenna leigumarkað. Hérna er verið að bjóða upp á varanlegt húsnæði á mun betra verði en gengur og gerist á markaðnum í dag. Til framtíðar gerum við ráð fyrir að reksturinn verði að fullu sjálfbær og ef vel tekst til þá ætti verkefnið að vera öðrum sveitarfélögum, félagasamtökum og verktökum hvatning til sambærilegra framkvæmda. Við reiknum með að fyrstu íbúarnir flytji inn strax 1. desember“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar sem er að vonum ánægð með að komið sé að afhendingu íbúðanna. 

Reiknað er með að leiguverð per fermetra verði um 2.500.- kr. Þannig verður leiga á tveggja herbergja íbúð um 125.000.- kr og fjögurra herbergja íbúð um 200.000.- kr. sem er nokkuð lægra en á almennum leigumarkaði og í einhverjum tilfellum kunna íbúar að eiga samhliða rétt á húsaleigubótum.

Skarðshlíð íbúðarfélag hses og framkvæmdin

Skarðshlíð íbúðarfélag hses er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarsjónarmiða sem stofnuð var af Hafnarfjarðarbæ. Félagið hefur þann tilgang að byggja eða kaupa, eiga eða hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra íbúða og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum um almennar íbúðir. Byggingarkostnaður húsnæðisins er um 280 milljónir króna og nemur stofnframlag frá Íbúðalánasjóði og Hafnarfjarðarbæ 30%. Ráðgert er að húsaleiga standi undir afborgunum af lánum, fjármagnsgjöldum og rekstri.

Sjá allar nánari upplýsingar

Ábendingagátt