Leikskólar og frístundastarf opna kl. 13 í dag

Fréttir

Leikskólar opnar kl. 13 í dag. Starf frístundaheimila, íþróttastarf, tónlistarskóla og félagsmiðstöðvr hefst á sínum hefðbundnu tímum.

Samræmd skilaboð frá almannavörnum fyrir höfuðborgarsvæðið 

Leikskólar opnar kl. 13. Starf frístundaheimila, íþróttastarf, tónlistarskóla og félagsmiðstöðvar hefst á sínum hefðbundnu tímum.

Skólahald var fellt niður í dag
vegna óveðursins sem gekk yfir landið í nótt. Það snjóaði ekki eins mikið á
höfuðborgarsvæðinu í nótt eins og búist var við, þar sem hiti var nokkuð yfir
frostmarki. Þess vegna eru flestar stofnæðar og tengibrautir færar og einnig
fjölmargar íbúrðagötur. Unnið hefur verið að því að ryðja íbúrðagötur sem eru
ekki færar og á það helst við í efri byggðum og jafnvel víða.

Veðrið er gengið niður og hafa
því skólayfirvöld á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að opna leikskóla klukkan 13.
Þessi ákvörðun á einungis við þá leikskóla þar sem ekki voru áður auglýstir
skipulagsdagar. Starf grunnskóla fellur niður í dag eins og áður hefur verið
tilkynnt. Starf frístundaheimila,
íþróttastarf, tónlistarskóla og félagsmiðstöðvr hefst á sínum hefðbundnu tímum.

Gul veðurviðvörun frá kl. 18 í dag mánudag 

Minnt er á að í dag
mánudag tekur við gul veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Eins og staðan er
núna þá gildir hún frá kl. 18 og gildir fram á þriðjudag.  Því er mikilvægt
að foreldrar/ forráðamenn fylgist með veðri í fyrramálið áður en lagt er af
stað í skólann. 

Sjá frekari upplýsingar hér: https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk

Ábendingagátt