Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnfirski leikskólinn Álfasteinn fær Orðsporið 2026 á Degi leikskólans, sem er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið, hvatningarverðlaun leikskólans, í tengslum við þennan ánægjulega dag. Um fimmtíu tilnefndu og varð Álfasteinn hlutskarpastur.
Leikskólinn Álfasteinn hlaut í dag Orðsporið 2026 fyrir fagmennsku, ígrundun og metnaðarfullt þróunarstarf sem byggt er á fræðilegum grunni og samvinnu.
Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, afhenti Ingu Líndal, leikskólastjóra Álfasteins, viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í leikskólanum nú í morgun. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, færði þeim einnig blóm og óskaði hann og Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs, þeim til hamingju fyrir hönd bæjarins.
Í umsögn valnefndar Orðsporsins segir að með markvissri stefnu skólans um að hvetja starfsfólk til náms í leikskólakennarafræðum hafi skapast „sterkt faglegt umhverfi þar sem rannsóknir, starfendarannsóknir og sameiginleg ábyrgð á gæðum skólastarfs eru leiðarljós“.
Í tilkynningu Kennarasambands Íslands segir að kennararnir Helga Guðmundsdóttir og Hjördís Jónsdóttir hafi að mati valnefndar sýnt faglegt hugrekki með starfendarannsóknum; þær hafi rýnt, með kerfisbundnum hætti, í eigið starf, spurt gagnrýninna spurninga og þróað nýjar leiðir í skólastarfinu, meðal annars er kemur að aðferðum sem geta haft áhrif á tengslamyndun og samskipti við foreldra.
„Starfendarannsóknirnar hafa leitt til raunverulegra breytinga á starfsháttum. Innleiddir hafa verið tengslahringir og samskiptahringir þar sem kennarar meta tengsl sín við hvert barn fjórum sinnum á ári. Þessi kerfisbundna nálgun tryggir að ekkert barn verði jaðarsett og að gripið sé tímanlega til aðgerða ef tengsl eru veik. Með þessu hefur tekist að styrkja öryggi barna, fagvitund kennara og samvinnu innan teymanna,“ segir í umsögninni.
Þá kemur fram í umsögn valnefndar að kannanir meðal foreldra sýni mælanlega aukningu á ánægju með aðlögunarferli skólans, eftir að breytingarnar voru innleiddar. Foreldrasamtöl, sem fara að jafnaði fram sex til átta vikum eftir aðlögun, hafa orðið að mikilvægu faglegu rými fyrir endurgjöf og samræður – sem eflir traust foreldra og forráðamanna til kennara og starfsfólks.
„Starf skólans sýnir hvernig markviss þróun, byggð á fræðilegum grunni og samvinnu, getur skapað varanlegan ávinning fyrir börn, foreldra og samfélagið í heild,“ segir í lok umsagnar valnefndar.
Hafnarfjarðarbær hlaut einnig viðurkenninguna árið 2023. Þá fyrir það framsækna skref að samræma starfstíma í leikskólum og grunnskólum bæjarins og gera þannig skólaárið á þessum tveimur skólastigum sambærilegt.
Kennarasamband Íslands, Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla og Mennta- og barnamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli.
Leikskólinn Álfasteinn tók til starfa í mars árið 2001. Leikskólinn stendur hátt á holti í suðrbænum og nánasta umhverfi er hraun og fjara. Að jafnaði dvelja ríflega sextíu börn í leikskólanum.
Einkunnarorð Álfasteins eru: Ábyrgð, virðing, samvinna.
Kennarasamband Íslands óskar leikskólanum Álfasteini innilega til hamingju með viðurkenninguna. Það gerum við.
Hafnfirski leikskólinn Álfasteinn fær Orðsporið 2026 á Degi leikskólans, sem er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið,…
Lítið vatn er í Hamarskotslæknum vegna viðgerða á fráveitulögn sem liggur í honum. Lækurinn verður aftur stíflaður á morgun og…
Samkvæmt nýrri þjónustukönnun Gallup eru níu af hverjum tíu íbúum ánægðir með Hafnarfjörð sem búsetustað eða 91%. Talan hækkar milli…
Fyrsta vinnustofan af fjórum um lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna verður haldin í Nýsköpunarsetrinu næsta laugardag.
Margt er í boði á Vetrarhátíð 2026. Rýndu í dagskrána og fáðu innblástur við uppröðunina. Þannig verður helgin frábær.
Leikararnir Bjarni og Gúa Margrét, jazzband og Sundhöllin okkar leika aðalhlutverkið þegar kvikmyndin When Harry met Sally lifnar við hér…
Hvernig upplifðir þú Jólaþorpið? Hvernig getum við bætt það? Tjáðu skoðun þína í stuttri netkönnum sem gefur okkur tækifæri til…
Byggðasafn Hafnarfjarðar hlaut 5,9 milljónir króna í styrki við aðalúthlutun safnasjóðs Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
„Vika6 er kynfræðsla í sinni víðustu mynd,“ segir Kristín Blöndal Ragnarsdóttir kynfræðslukennari en þemað í þessari sjöttu viku ársins í…
Tæpum 15 milljónum af 34 milljón króna veltu Hafnarfjarðarkortsins hefur verið varið í vörur og þjónustu hafnfirskra fyrirtækja frá því…