Leynist grenitré í garðinum þínum?

Fréttir

Senn líður að jólum og þá gengur í garð tíminn þar sem þarf að sinna uppsetningu á jólalýsingum og skreytingum. Garðyrkjustjóri leitar eftir grenitrjám í görðum sem hafa e.t.v. lokið sínu hlutverki þar.

Grenitré geta orðið mjög há og taka oft ansi mikið pláss og kostnaðarsamt fyrir garðeigandann að fjarlægja slík tré, því var ákveðið að slá tvær flugur í einu höggi með því að bærinn bjóði upp á slík skipti.

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar koma á staðinn og fella tréið og fjarlægja það síðan garðeigendum að kostnaðarlausu og tréð nýtist sem gleðigjafi yfir aðventuhátíðina.

Skilyrðin eru að tréið hafi náð a.m.k. fimm metra hæð, að vaxtarlagið sé gott þ.e.a.s. að tréið sé vel greint allan hringinn og það sé auðvelt að komast að því til að fella það niður við jörðu.  Tréin verða felld og sett upp á fyrirfram ákveðna staði í nóvember.

Áhugasamir geta haft samband við garðyrkjustjóra í síma 585-5670 eða sent tölvupóst á 
gudjon.s@hafnarfjordur.is  fyrir 30.október n.k.

Ábendingagátt