Lifandi tónlist í sundbíói í Sundhöllinni

Fréttir

Leikararnir Bjarni og Gúa Margrét, jazzband og Sundhöllin okkar leika aðalhlutverkið þegar kvikmyndin When Harry met Sally lifnar við hér í Hafnarfirði.

Upplifun í Sundhöllinni okkar

„Um leið og þú mætir í sundið ertu kominn í annan heim. Þú ert kominn í ævintýraheim,“ segir Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri RIFF kvikmyndhátíðarinnar, sem kemur með kvikmyndahátíðina til Hafnarfjarðar næsta fimmtudag. Þá lifnar kvikmyndin When Harry met Sally við í Sundhöllinni í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ.

Já, myndin verður ekki aðeins sýnd heldur leikin á bakkanum af leikurum sem svipa til Billy Crystal og Meg Ryan. Tónlistin er einnig lifandi. Viðburðurinn verður einstök upplifun á bökkum Sundhallarinnar okkar.

„Sundhöll Hafnarfjarðar er ein fegursta bygging sem ég hef séð. Hún er æðisleg og andrúmslofið þar er algjörlega einstakt. Guðjón Samúelsson hannar bygginguna sem er fullkominn staður til að gera eitthvað skemmtilegt fyrir þessa kvikmynd,“ segir Hrönn um þessa sundbíós-upplifun fimmtudaginn 5. febrúar.

„Þetta verður rómantískasta Sundbíó RIFF frá upphafi,“ segir Hrönn. „Kvikmyndin er svo skemmtileg og falleg, rómantísk. Í henni er góður húmor, falleg tónlist. Þetta er tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi í mesta skammdeginu,“ segir Hrönn og fer yfir ævintýrið, því upplifunin er allt önnur en bara að horfa á kvikmynd.

„Við fundum leikara sem líkjast mjög Billy Crystal og Meg Ryan. Við erum búin að redda búningum. En ungi maðurinn heitir Bjarni Kristbjörnsson, frekar líkur Billy Crystal sjálfum. Hann fór sérstaklega í klippingu til að líkjast Billy enn meir. Gúa Margrét Bjarnadóttir bregður sér í hlutverk Meg Ryan. Þau eru peppuð og hún ótrúlega lík Meg Ryan. Carmen-rúllurnar gera gæfumuninn.“

Hrönn lýsir því hvernig áhorfendur detti inn í undraheim í Sundhöllinni, „Lífandi tónlist á bakkanum,“ segir hún. „Jassband sem hefur æft slagarana, verður á staðnum. Hún poppar upp stemninguna og spilar lög. Og það verða fleiri uppákomur.“

Hrönn segir RIFF-starfsfólkið svo peppað. „Miðasala hefur gengið vel og við ætlum að virða stemninguna í lauginni.“

Takmarkaður miðafjöldi í boði. Hús opnar 18.00 en myndin hefst kl. 19.00. Miðasala fer fram á vefsíðu RIFF, riff.is

Ábendingagátt