Lífshlaupið er hafið!

Fréttir

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að
hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um
hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í
ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur
daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30
mínútur daglega.

Lífshlaupið skiptist í
fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni
    frá 1. – 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni
    frá 1. – 14. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • grunnskólakeppni
    frá 1. – 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni
    þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávallt hvetur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands alla landsmenn
til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka
félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum. Skráning er í fullum gangi og um að gera að taka þátt frá upphafi.
Skráningarferlið er einfalt og þægilegt. Gaman er að geta fylgst með sinni
hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má
alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis
landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í
a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag.

Við hjá Hafnarfjarðarbæ hvetjum alla okkar starfsmenn, starfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði og íbúa til þátttöku.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn
Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is eða í síma: 514-4000.

SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á www.lifshlaupid.is

Ábendingagátt