Listamannaspjall og sýningarlok

Fréttir

Sunnudaginn 23. ágúst kl. 15 munu Björn Árnason, Daniel Reuter og Katrín Elvarsdóttir koma saman í aðalsal Hafnarborgar og ræða verk sín á sýningunni
Enginn staður  við sýningargesti. Þetta er jafnframt síðasti sýningardagur sýningarinnar.

Sunnudaginn 23. ágúst kl. 15 munu Björn Árnason, Daniel Reuter og Katrín Elvarsdóttir koma saman í aðalsal Hafnarborgar og ræða verk sín á sýningunni  
Enginn staður við sýningargesti. Þetta er jafnframt síðasti sýningardagur sýningarinnar.

Á sýningunni eru verk átta ljósmyndara sem allir eru búsettir á Íslandi og beina sjónum sínum að íslenskri náttúru. Ásamt þeim Birni, Daniel og Katrínu eiga Claudia Hausfeld, Edda Fransiska Kjarval, Ingvar Högni Ragnarsson, Pétur Thomsen og Stuart Richardson verk á sýningunni. Verkin eru öll unnin á árunum 2008 – 2015.

Verk sýningarinnar endurspegla innra og ytra landslag listamannanna sem horfa á náttúruna hver með sínum augum og kalla þau fram hjá hverjum og einum meðvitund um staði sem koma kunnuglega fyrir sjónir. Þetta er landslagið sem er okkur öllum svo kunnugt, myndin sem við sjáum þegar við lítum út um bílglugga á ferð okkar um landið, staðirnir sem bera engin nöfn, umhverfið sem við sjáum á milli merkilegu áfangastaðanna.

Sýningarstjórar eru Áslaug Íris Friðjónsdóttir og Unnur Mjöll S. Leifsdóttir.

Björn Árnason er fæddur 1980 og útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum vorið 2012. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar ásamt þess af hafa haldið og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi.

Daniel Reuter fæddist í Þýskalandi árið 1976. Hann útskrifaðist frá Limited-residency MFA í ljósmyndun frá Hartford Háskóla í Connecticut árið 2013. Fyrsta bók hans, Saga heimsóknarinnar, var tilnefnd til Paris Photo-Aperture Foundation First Photobook of the Year verðlaunanna 2013 og einnig til Þýsku Ljósmyndabóka verðlaunanna árið 2015. Verk hans hafa verið sýnd í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Daniel býr og starfar í Reykjavík.

Katrín Elvarsdóttir útskrifaðist með BFA gráðu frá Art Institute of Boston,Massachusetts, árið 1993. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölda samsýninga víðaum heim. Bókin Mórar/nærvídd, sem hún vann í samstarfi við Matthías Hemstock, var gefin út af 12 tónum árið 2005 og bækur hennar Equivocal og Vanished Summer komu út hjá Crymogeu 2011 og 2013. Katrín var tilnefnd til Deutsche Börse Photography Prize 2009 og til heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007. Verk Katrínar má finna í fjölmörgum opinberum söfnum sem og einkasöfnum.

Ábendingagátt