Lítið vatn í læknum vegna viðgerðar

Fréttir

Lítið vatn er í Hamarskotslæknum vegna viðgerða á fráveitulögn sem liggur í honum. Lækurinn verður aftur stíflaður á morgun og nær þá fyrra vatnsstöðu.

Hamarskotslækurinn hér í Hafnarfirði

Vegfarendur sem fara fram hjá Hamarskotslæknum okkar hér í Hafnarfirði þurfa ekki að vera mjög glöggir til að sjá að hann er ekki eins og venjast má. Viðgerð á fráveitulögn sem liggur í læknum stendur nú yfir. Stíflan í læknum var því rofin og mestu vatni hleypt frá fyrr í vikunni. Viðgerðin hefur gengið vel og er stefnt að því að stífla lækinn aftur strax á morgun.

Veðrið er stillt og lækurinn vel sóttur fuglum; álftum, gæsum og öndum. Fulltrúi Dýraverndunarfélags Hafnarfjarðar var þar á bakkanum að fóðra fuglana, rétt eins og daglega, og segir fuglana stressaða yfir breytingunum sem nú má sjá á Læknum.

Lögnin sem gert er við er gömul. Verið er að fóðra hana. Tíminn var valinn með það að markmiði að raska dýralífi sem minnst; engir ungar á ferð. Verktaki sér um verkið fyrir Hafnarfjarðarbæ. Allt gengur eftir áætlun. Lækurinn verður því brátt aftur eins og má venjast og fuglarnir aftur á stað sem þeir þekkja.

Ábendingagátt