Litli Ratleikur – páskagjöf til íbúa og vina Hafnarfjarðar

Fréttir

Litli Ratleikur er frír leikur sem hvetur til gönguferða um bæinn. Snjallsími er það eina sem þarf og hægt að taka þátt hvenær sem er.

Heilsubærinn Hafnarfjörður og Hönnunarhúsið ehf. hafa tekið höndum saman í samkomubanninu og gefið út Litla ratleik í fyrsta sinn. Litli Ratleikur Hafnarfjarðar er ætlaður sem hvatning til útiveru í og við byggðina í Hafnarfirði. Hann er frábrugðinn stóra Ratleik Hafnarfjarðar að engin ratleiksmerki eru á staðnum eða ratleikskort en hægt er að stunda hann hvenær sem er og nálgast helstu upplýsingar um staðina á ratleikur.fjardarfrettir.is.

Nú þegar eru fimmtán staðir í litla ratleiknum og ef áhugi er fyrir hendi verða mögulega fleiri stöðum bætt við og allar ábendingar eru vel þegnar. Markmið leiksins er að leiða þátttakendur vítt og breitt um Hafnarfjörð á tímum samkomubanns og hvatning til íbúa að njóta útivistar og náttúrunnar í heimabyggð um páskana. Flestir staðirnir eru innanbæjar en einnig eru nokkrir staðir í nágrenni Hvaleyrarvatns.

Guðni Gíslason er höfundur ratleiksins en það er Hönnunarhúsið ehf. sem gefur út leikinn á vefnum í samstarfi við heilsubæinn Hafnarfjörð. Allir geta tekið þátt og þátttakendur eru hvattir til þess að taka myndir af sér á ratleiksstöðunum og deila á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #LitliRatleikur.

GudniGislaGuðni Gíslason, umsjónarmaður Litla Ratleiks hefur lagt Ratleik Hafnarfjarðar frá 2007

„Ratleikurinn er tilvalið fjölskylduverkefni fyrir íbúa og vini Hafnarfjarðar og frábær hugmynd að einhverju sem hægt er að gera í heimabyggð um páskana á sínum hraða,“ segir Geir Bjarnason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðar. „Ég hvet alla til þess að kíkja á litla ratleikinn og komast að því hvað okkar næsta umhverfi býður uppá marga spennandi staði að heimsækja.“

Stýrihópur Heilsubæjarins Hafnarfjarðar hvetur bæjarbúa til að taka þátt í nýjum og skemmtilegum ratleik í og við byggð.

Nánar má sjá um leikinn á ratleikur.fjardarfrettir.is og á www.facebook.com/ratleikur
Þátttakendur eru hvattir til að deila myndum úr leiknum og merkja #LitliRatleikur

Ábendingagátt