Litlu leikskólatrén á Thorsplani
Jólabærinn Hafnarfjörður heldur í þær fallegu hefðir sem skapast afa í aðdraganda jóla. Ein af þessum fallegu hefðum eru jólaskreytingar elstu leikskólabarna á Thorsplani. Hópar leikskólabarna hafa lagt leið sína í Jólaþorpið í vikunni með fallegar og umhverfisvænar jólaskreytingar sem þau hafa sjálf útbúið.
Ein af fjölmörgum fallegum jólahefðum í jólabænum
Jólabærinn Hafnarfjörður heldur í þær fallegu hefðir sem skapast afa í aðdraganda jóla. Ein af þessum fallegu hefðum eru jólaskreytingar elstu leikskólabarna á Thorsplani. Um árabil hafa leikskólar í Hafnarfirði séð um að skreyta litlu jólatrén sem prýða Jólaþorpið á Thorsplani. Hópar leikskólabarna hafa lagt leið sína í Jólaþorpið í vikunni með fallegar og umhverfisvænar jólaskreytingar sem þau hafa sjálf útbúið. Skrautið er afar kærkomið og hefur sett skemmtilegan svip á Jólaþorpið frá upphafi.
Skapandi og skemmtilegir leikskólakrakkar
Skrautið er unnið úr endurvinnanlegum efnum og er af ýmsum toga og hugvitssemin allsráðandi. Við hvetjum Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að fara í skoðunarferð um Thorsplan, skoða skrautið og jafnvel fá hugmyndir að skrauti sem hægt er að föndra heima á aðventunni með litlum tilkostnaði en mikilli gleði.
